Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. „Umrædd styrkjaúthlutun Reykjavíkurborgar til Ríkisútvarpsins upp á rúmar 14 m.kr. er óskiljanleg og vekur óneitanlega furðu,“ er haft eftir Björg Ástu Þórðardóttur, yfirlögfræðingi Samtaka iðnaðarins. Hún sagði jafnframt að hér sé um það að ræða að stjórnvald sé að styrkja opinbert hlutafélag, sem fær um 4 milljarða í nefskatt á ári, án þess að samkeppnisaðilar geti sótt um sambærilegan styrk.
Hún benti einnig á að framleiðsla á efni fyrir ungt fólk hafi nú þegar verið styrkt með framlögum úr almannasjóðum samkvæmt þjónustusamningi ríkisins frá 2016.
Í síðustu viku samþykkti borgarráð drög að samstarfs- og styrktarsamningi skóla- og frístundasviðs við UngRÚV. Markmiðið er að veita unglingum í þremur elstu bekkjum grunnskóla tækifæri til að sækja sér fræðslu og starfsreynslu við fjölmiðlun og dagskrárgerð. Í samningnum er kveðið á um að borgin greiði RÚV tæplega 14,2 milljónir á þremur árum. Sérstaklega er tekið fram að ekki sé um virðisaukaskattskylda starfsemi að ræða. Einnig fylgir greinargerð um hvernig samningurinn samræmist íslenskum og evrópskum lögum og reglum og að kaupin séu ekki útboðsskyld samkvæmt reglum um slík innkaup.
Morgunblaðið hefur eftir Stefáni Eiríkissyni, útvarpsstjóra, að eflaust hefði formið getað verið með öðrum hætti en að honum sýndist á gögnum frá borginni að öllum spurningum varðandi útboðið hefði verið svarað skýrt í undirbúningi samningsins.