fbpx
Fimmtudagur 10.apríl 2025
Pressan

Á 17 sekúndna fresti deyr Evrópubúi af völdum COVID-19

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 23. nóvember 2020 06:32

Sjúklingi sinnt á gjörgæsludeild. Mynd: EPA-EFE/STEPHANIE LECOCQ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á 17 sekúndna fresti deyr Evrópubúi af völdum COVID-19 að sögn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar WHO. Ljósi punkturinn er þó að sögn WHO að nú virðist sem önnur bylgja faraldursins sé að byrja að réna lítillega.

Washington Post skýrir frá þessu. Þessi örlitla bjartsýni hjá WHO byggir á að í síðustu viku greindust 1,8 milljónir smita í álfunni en voru 2 milljónir vikuna áður. Í nokkrum af þeim löndum sem hafa orðið verst úti í faraldrinum má sjá mikla fækkun tilfella, þar á meðal í Frakklandi, Belgíu og Tékklandi. Í Þýskalandi er smitkúrvan einnig farin að sveigjast niður á við.

En þrátt fyrir þetta er álagið á heilbrigðiskerfið mikið og andlátum af völdum COVID-19 hefur fjölgað um alla álfuna. „Það eru góðar fréttir og ekki svo góðar fréttir,“ sagði Hans Kluge, svæðisstjóri WHO í Evrópu, á fréttamannafundi á föstudaginn. Hann sagði að fækkun smita væri smá vísbending um þróun faraldursins. Hann sagði að þetta mætti þakka sóttvarnaaðgerðum sem gripið hefur verið til víða um álfuna á síðustu vikum. Hann varaði ríki álfunnar við að slaka of snemma á aðgerðum sínum og sagði að sá litli árangur, sem náðst hefur, muni þá hverfa hratt eins og gerðist í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Elín Metta komin heim
Pressan
Í gær

Kínverjar gera grín að Bandaríkjamönnum – Sjáðu myndbandið

Kínverjar gera grín að Bandaríkjamönnum – Sjáðu myndbandið
Pressan
Í gær

Margir þekktir á meðal þeirra sem létust í harmleiknum

Margir þekktir á meðal þeirra sem létust í harmleiknum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ráðgáta eftir að fimm hjúkrunarfræðingar á sömu hæð greindust með heilaæxli

Ráðgáta eftir að fimm hjúkrunarfræðingar á sömu hæð greindust með heilaæxli
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump sagður ætla að halda upp á afmælisdaginn með stærðarinnar sýningu

Trump sagður ætla að halda upp á afmælisdaginn með stærðarinnar sýningu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ótrúlegar staðreyndir um hunda

Ótrúlegar staðreyndir um hunda
Pressan
Fyrir 4 dögum

Á þessum tveimur aldursskeiðum eldist líkaminn mjög hratt

Á þessum tveimur aldursskeiðum eldist líkaminn mjög hratt