Blaðamenn og sérlegir ráðgjafar þeirra fórnuðu sér í heljarinnar jólabjórssmakk til að gefa lesendum innsýn í frumskóg jólabjórsins sem er vissulega nokkuð þéttur í ár. Alls voru smakkaðir 49 jóla- bjórar en þá gaf úthaldið sig – í heild eru yfir 80 jólabjórar til sölu í Vínbúðum fyrir þessi jól.
Smakkteymið var samsett af miklu áhugafólki um bjór, þeim Heimi Hannessyni, Mána Snæ Þorlákssyni og Erlu Dóru Magnúsdóttur sem öll eru blaðamenn DV, auk Áslaugar Högnadóttur kennara og Jóhanns Más Valdimarssonar rekstrarstjóra. Athugið að farið var eftir ítrustu sóttvarnarreglum!
Gefnar voru einkunnir fyrir bragð, nýbreytni, umbúðir, og auðvitað bónus stig fyrir frumleg nöfn. Tekið skal fram að smakkararnir eru mikið ævintýrafólk í bjór, og vildi láta koma sér á óvart. Bjórnum var skipt upp í fjóra flokka, og er sá fyrsti flokkur Lagera, hveitibjóra og svokallaðra Amber-ale.
Hinir flokkarnir eru IPA/Brown Ale/Pale Ale, Porter/Stout/Barley Wine/Kryddbjórar og svo loks Súrbjórar/Annað. Niðurstöður úr þeim flokkum verða birtar á næstu dögum.