„Okkur hefur borist einhverjar vísbendingar en enginn þeirra hefur leitt okkar til hans. Lögreglan lýsir enn þá eftir honum og við skorum á hann að gefa sig fram sem allra fyrst. Við þurfum að tala við hann,“ segir Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn í samtali við Fréttablaðið.
Lögregla lýsti í gær eftir Ævari Annel Valgarðssyni, tvítugum manni. Hann er 174 sm á hæð, grannvaxinn og með dökkt hár. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ævars, eða vita hvar hann er niðurkominn, eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.
Talið er að Ævar hafi tengsl við óhugnanleg ofbeldismyndbönd sem birst hafa í vikunni. Þar kemur fyrir 28 ára MMA bardagakappi en bensínsprengju var fleygt inn um glugga að íbúð þess manns að Friggjarbrunni í Úlfarsárdal á þriðjudagskvöld.
Á sunnudag birti bardagakappinn myndband af sér þar sem hann gengur í skrokk á manni. Fleiri slík myndbönd hafa birst í vikunni og ennfremur myndband af manni að kasta bensínsprengju inn um glugga að íbúð mannsins.
Bardagakappinn var í gær úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald.
Lögregla hefur ekki vilja staðfesta tengsl Ævars við þessi mál. Hann hefur þó birt færslu þar sem hann hæðist að bardagakappanum og segir að ekki hafi séð á sér eftir árás kappans.