BBC skýrir frá þessu. Fram kemur að fjöldi morða, sem eru framin vegna haturs í garð ákveðinna þjóðfélagshópa, hafi náð nýjum hæðum á síðasta ári og verið 51. Það eru rúmlega tvöfalt fleiri morð en 2018.
Í skýrslunni eru hatursglæpir skilgreindir sem afbrot sem beinist gegn einhverjum vegna kynþáttar þeirra, uppruna, trúar, kynhneigðar, fötlunar, kyns eða kynáttunar. Fjöldi hatursglæpa hefur vaxið nær árlega síðan 2014.
BBC segir að réttindahópar segi að þetta megi rekja til vaxandi þröngsýni og kynþáttahlaðinnar orðræðu.
Árið 2008 voru skráðir hatursglæpir um 400 fleiri en á síðasta ári. Á síðasta ári átti versti hatursglæpur, sem skráður hefur verið af FBI, sér stað en þá skaut ungur Bandaríkjamaður 22 til bana í verslun Walmart i El Paso í Texas. Árásin beindist gegn fólki af mexíkóskum uppruna.
Í skýrslunni kemur fram að svart fólk sé sá þjóðfélagshópur sem oftast verður fyrir barðinu á hatursglæpum. 48,5% hatursglæpa beinast gegn svörtu fólki. 15,7% gegn hvítu og 14,1% gegn fólki af latneskum uppruna.