Á miðvikudaginn var tilkynnt að fólk ætti að halda sig heima og að mörg fyrirtæki þyrftu að loka vegna mjög smitandi staðbundins faraldurs af kórónuveirunni. Í gær tilkynnti Steven Marshall, forsætisráðherra ríkisins, að pizzubakari einn hefði logið að smitrakningateymi og því hefði málið litið mun verr út en það var í raun og veru.
Maðurinn sagðist hafa komið á pizzustaðinn til að kaupa sér pizzu en í raun og veru starfaði hann þar. Yfirvöld telja að hann hafi smitast á mjög stuttu tímabili þrátt fyrir að hann hafi starfað á mörgum vöktum með smituðum starfsmanni, smittímabilið hafi verið stutt. Vegna lyga mannsins héldu yfirvöld að þessi veirustofn væri mjög smitandi.
„Það væri vægt til orða tekið að segja að ég sé öskureiður út af því sem þessi aðili gerði,“ sagði Marshall á fréttamannafundi í dag. „Það sem þessi einstaklingur gerði hefur sett ríkið okkar í mjög erfiða stöðu,“ sagði hann.
Á miðvikudag var tilkynnt um sex daga langa lokun samfélagsins í ríkinu til að hægt væri að ná tökum á faraldri mjög smitandi afbrigðis veirunnar en þá höfðu 22 smit verið staðfest. Aðfaranótt fimmtudags lokuðu því skólar, barir, kaffihús og háskólar. Þá var öll starfsemi í byggingariðnaði stöðvuð.
Marshall sagði að þrátt fyrir að yfirvöld hafi enn áhyggjur af þessum faraldri þá verði lokanirnar styttar til muna og gilda nú aðeins til miðnættis á laugardaginn og þá má fólk fara að heima og flest fyrirtæki mega hefja starfsemi á nýjan leik.
Umræddur faraldur í ríkin er rakinn til manns sem kom frá Bretlandi. Reiknað er með að staðfestum smitum fjölgi á næstu dögum en yfirvöld hafa ekki nærri því eins miklar áhyggjur af þessum faraldri og í upphafi.