Hann hvetur einnig íbúa borgarinnar til að sýna sérstaka aðgæslu á öllum sviðum til að forðast smit. Ummæli hans veikja vonir um að New York sé á leið út úr faraldrinum. Síðustu sjö daga hafa borgaryfirvöld skráð 3% meðalaukningu á smitum i borginni. Áður hafði verið ákveðið að ef smitum myndi fjölga um 3% eða meira að meðaltali á einni viku yrði skólum borgarinnar lokað.
Skólar í borginni voru opnaðir á nýjan leik í september eftir langa lokun vegna heimsfaraldursins. New York var miðpunktur faraldursins í Bandaríkjunum í vor en í sumar fækkaði smitum mikið en á síðustu vikum hefur þróunin snúist til verri vegar.
En það er ekki bara í New York sem þróunin er til verri vegar þessar vikurnar. Víða hefur fjöldi smita náð nýjum hæðum og það sama á við um innlagnir á sjúkrahús. Á þriðjudaginn lágu 75.000 COVID-19 sjúklingar á sjúkrahúsum landsins og hafa aldrei verið fleiri.
Í gærkvöldi höfðu rúmlega 250.000 látist af völdum COVID-19 í Bandaríkjunum samkvæmt tölum frá Johns Hopkins háskólanum. „Ég hef meiri áhyggjur en nokkru sinni áður, síðan faraldurinn skall á,“ sagði Tom Inglesby, læknir og yfirmaður hjá Johns Hopkins Center for Health Security, í samtali við CNN í gærkvöldi.
Í að minnsta kosti 18 ríkjum hafa yfirvöld að undanförnu gripið til nýrra og harðari aðgerða vegna faraldursins. En í Hvíta húsinu finnst fólki þetta vera of harkalegt. Kayleigh McEnany, talskona Hvíta hússins, sagði í gær að viðbrögðin og nýjar hömlur á líf fólks væru yfirdrifin. „Bandaríkjamenn vita hvernig þeir eiga að gæta að heilsu sinni. Sem einstaklingar tökum við ábyrgar ákvarðanir um heilbrigðismál,“ sagði hún í samtali við Fox News.