Að þessu sinni var það hin 19 ára gamla Honor Uloth sem lést. Daily Mail skýrir frá þessu.
„Við höfum misst dóttur og systur sem gaf okkur margar bjartar og skemmtilegar minningar,“ segir í yfirlýsingu Guinness-fjölskyldunnar.
Það var yngri bróðir Honor sem fann hann líflausa í sundlaug við heimili fjölskyldunnar í Sussex. Hún lést sex dögum síðar. Þetta gerðist í ágúst en ekki var skýrt frá þessu fyrr en í þessari viku.
People hefur fengið aðgang að krufningarskýrslunni. Í henni kemur fram að Honor hafi verið í nuddpotti með vinum sínum þetta kvöld en að um klukkan 23 hafi hún farið yfir í sundlaugina. Skömmu síðar fann bróðir hennar hana meðvitundarlausa á botni laugarinnar. Hún var axlarbrotin og með áverka á höfði.
„Þrátt fyrir að sundlaugin sé upplýst virðist sem Honor hafi annað hvort stokkið eða dottið ofan í sundlaugina og rekið höfuðið í og misst meðvitund. Ekki er vitað hvað hún rak höfuðið í,“ segir í skýrslunni.
Það var ættfaðirinn Arthur Guinness sem stofnaði brugghúsið St. James‘s Gate Brewery í Dublin á Írlandi og varð á skömmum tíma ríkasti maður landsins. Góður árangur og sorg héldust í hendur hjá honum því á nokkrum árum missti hann 10 af 21 barni sínum við dularfullar kringumstæður. Mörg barnabarna hans urðu áfengissjúklingar og önnur dóu í fátækt eða enduðu á geðdeildum.
1944 var Walter Guinness, erfingi veldisins, skotinn til bana af hryðjuverkamönnum í Kaíró í Egyptalandi. 1966 lést frændi hans, Tara Browne, í bílslysi, aðeins 21 árs. 1978 lést Peter Guinness í bílslysi, aðeins fjögurra ára að aldri. Þetta sama ár létust þrír aðrir úr fjölskyldunni. Fyrst var það Lady Henriette Guinness sem kastaði sér fram af brú á Ítalíu. Því næst var það Natalya Citkowitz sem lést úr áfengiseitrun og Dennys Guinness fannst látinn á heimili sínu, hljótt hefur verið um dánarorsök hans en talið er að hann hafi tekið eigið líf. Hann hafði áður lent upp á kant við lögin og verið handtekinn eftir að hann veifaði skammbyssu á almannafæri.
1988 lést John Guinness þegar hann hrapaði 150 metra þegar hann var á göngu á hæsta fjalli Wales, Snowdon. Aðeins tveimur árum áður hafði eiginkonu hans, Jennifer, verið rænt af heimili þeirra og haldið fanginni í átta daga.