Trump hefur verið ósáttur við þetta en hefur samt sem áður haldið áfram að tísta af miklum móð enda vandséð hvar hann getur komið boðskap sínum betur áleiðis til stuðningsmanna sinna. En þegar hann lætur af embætti þann 20. janúar næstkomandi lýkur sérstöku og nánu sambandi hans og Twitter.
Jack Dorsey, forstjóri Twitter, sagði í gær að þegar forsetatíð Trump er á enda þá fái hann ekki lengur neina sérmeðferð hjá miðlinum. Þetta sagði hann í gær þegar hann og Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook, komu fyrir þingnefnd öldungadeildarinnar og svöruðu spurningum um hlutverk samfélagsmiðlanna fyrir og eftir forsetakosningarnar og á meðan á þeim stóð.
Mazie Hirono, þingmaður frá Hawaii, spurði þá hvort miðlar þeirra myndu breyta um stefnu varðandi Donald Trump þegar hann lætur af embætti.
„Á nokkrum sviðum erum við með undanþágur fyrir stjórnmálamenn út frá þeim sjónarhóli að fólk eigi að geta heyrst hvað stjórnmálamenn og frambjóðendur segja. Ef forsetinn eða aðrir dreifa hatursræðu eða hvetja til ofbeldis eða deila efni sem gerir lítið úr lögmæti kosninganna eða möguleikum til að greiða atkvæði þá fær það sömu meðferð og hjá öllum öðrum sem segja svoleiðis hluti og þannig verður það áfram,“ sagði Zuckerberg. Hjá Facebook hefur starfsfólk verið iðið við að merkja færslur frá Trump með upplýsingum um að orð hans geti strítt á móti opinberum upplýsingum. Zuckerberg svaraði því spurningunni ekki beint en Jack Dorsey var beinskeyttur í svari sínu. „Við erum með ákveðna stefnu varðandi opinbera hagsmuni þar sem við gerum undantekningar fyrir þjóðarleiðtoga – ef tíst brýtur gegn notkunarskilmálum leyfum við því að standa. Við leyfum því að standa og setjum athugasemd við það og fólk getur ekki endurtíst því. Ef notandinn er ekki lengur þjóðarleiðtogi missir hann þessa undanþágu,“ sagði Dorsey.
Það má því reikna með að tíst frá Trump verði annað hvort fjarlægð eða þá að jafnvel verði lokað á hann ef hann setur inn færslur sem stríða gegn notkunarskilmálum Twitter.