Maður sem hefur keppt í bardagaíþróttinni MMA birti um helgina myndband sem sýnir hann ganga í skrokk á öðrum manni. Maðurinn var handtekinn síðdegis á sunnudag en myndband hans vakti athygli á samfélagsmiðlum auk þess sem fjölmiðlar greindu frá því.
Fréttablaðið greinir síðan frá því í kvöld að maðurinn búi í íbúð í Úlfarsárdal sem eldsvoði kom upp í í kvöld. Um er að ræða fjölbýlishús við Urðarbrunn. Eldurinn kom upp í einni íbúð og var íbúðin mannlaus. Sjónarvottur sá einhverju fleygt inn um glugga íbúðarinnar áður en eldurinn kviknaði. Greiðlega gekk að slökkva eldinn.
Samkvæmt frétt Mannlífs hefur maðurinn náð góðum árangri í bardagaíþróttinni MMA erlendis en keppnisferill hans hófst árið 2017.