Þetta sagði hún á föstudaginn en hún stýrir þeirri deild WHO sem hefur yfirumsjón með bólusetningum og ónæmi. „Ef bóluefni verður bara geymt í frysti eða ísskáp eða upp í hillu þá gerir það ekkert til að stytta þennan heimsfaraldur,“ sagði hún.
Hún lét þessi orð falla eftir að Pfizer lyfafyrirtækið og þýski samstarfsaðili þess, BioNTech, tilkynnti á mánudaginn að bóluefni þeirra veittu 90% allra bólusettra vernd gegn kórónuveirunni. Bóluefnið er nú á þriðja stigi tilrauna en rúmlega 40.000 manns taka þátt í þeim.
O‘Brien segir niðurstöðuna „gríðarlega mikilvæga“ en hún hefur jafnframt áhyggjur af vaxandi efasemdum fólks um allan heim í garð bóluefna og bólusetninga. Rangar upplýsingar og vantraust litar þetta vantraust fólks í garð vísinda.
„Heimsbyggðin mun ekki ná tökum á þessum heimsfaraldri með bóluefnum ef fólk vill ekki láta bólusetja sig,“ sagði hún. Hún hvetur ríki heims því til að gera meira til að auka trú fólks á bóluefnum. „WHO mun ekki gefa neinn afslátt af öryggi eða áhrifum þeirra bóluefna sem unnið er að,“ sagði hún.
Hún sagði að WHO veðji á að eitt eða fleiri bóluefni verði fljótlega samþykkt til notkunar. Markmiðið sé síðan að ríki heims verði búin að bólusetja um 20% íbúa sinna fyrir árslok 2021. Það á að duga til að vernda heilbrigðisstarfsfólk og þá sem eru í mestri áhættu.