Samband þeirra var örugglega eins og upphafið á ævintýri í hugum sumra. En þegar parið tilkynnti um trúlofun sína og væntanlegt brúðkaup 1981 voru strax komnir brestir í sambandið, meðal annars vegna ummæla Karls í trúlofunarviðtalinu. Þetta hefur verið rifjað upp að undanförnu í tengslum við að Netflix tók í gær til sýninga fjórðu þáttaröð „The Crown“ sem fjallar um bresku konungsfjölskylduna en þó aðallega Elísabetu II drottningu.
Þegar tilkynnt var um trúlofun parsins þann 24. janúar 1981 var Díana aðeins 19 ára en Karl var 31 árs. Í tengslum við trúlofunina kom parið fram í sjónvarpi. Díana, sem var feimin starfsmaður á leikskóla, brosti sig nánast í gegnum viðtalið og svaraði spurningum feimnislega. En eitt svar við spurningu eyðilagði allt saman að hennar mati. Þau voru spurð hvort þau væru ástfangin.
„Auðvitað,“ svaraði Díana, varfærnislega.
En verðandi eiginmaður hennar var ekki alveg jafn skýr í svörum:
„Hvað sem ást þýðir . . . ,“ svaraði hann.
Mörgum árum síðar sagði Díana að þessi orð Karls hefðu verið henni mikið áfall.
„Mér brá rosalega,“ sagði hún þá. „Mér fannst þetta undarlegt svar – ég var í algjöru áfalli,“ sagði hún þegar hún ræddi við raddþjálfa sinn 1993 en hann tók samtöl þeirra upp. Í þessum samtölum skýrði hún frá ýmsu fleiru um veikburða hjónabandið, meðal annars að hún hefði bara hitt Karl 13 sinnum áður en þau gengu í hjónaband. Fram að því hafði hún ekki mikið álit á honum.
„Hann límdi sig á mig eins slæm útbrot,“ sagði hún.
En þegar leið á samband þeirra var hún „upp með“ sér yfir áhuganum sem þessi eldri maður sýndi henni og ekki spillti fyrir að hann var næstur í erfðaröðinni að bresku krúnunni.
Samband Karls við Camilla Parker Bowles, sem er núverandi eiginkona hans, litaði alltaf samband hans við Díönu. Díana kallaði hana „dömuna hans“ og á upptökum raddþjálfarans sagði hún hverju Karl svaraði þegar hún spurði hann út í Camillu. „Ég neita að vera eini prinsinn af Wales sem aldrei átti ástkonu.“
Díana létti á hjarta sínum í 12 upptökum, sem fengu viðurnefnið „eldfimu dagbækurnar“ en í þessum upptökum leyndi hún því ekki hversu slæm trúlofunin, brúðkaupið og hjónabandið voru. Hún var með þessar upptökur í sinni vörslu allt þar til hún lést í ágúst 1997.