fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Hótelin vilja fá lán hjá sveitarfélögunum fyrir fasteignagjöldum

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 10. nóvember 2020 07:58

Slysið átti sér stað í austurbæ Reykjavíkur í gær.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hótel um allt land glíma nú við erfiðleika í rekstri vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Fulltrúar stærstu hótelkeðja landsins og Samtök ferðaþjónustunnar hafa nú farið þess á leit við sveitarfélögin að greiðslu fasteignagjalda verði frestað með útgáfu skuldabréfa þannig að í raun láni sveitarfélögin hótelunum fyrir fasteignagjöldunum.

Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Haft er eftir Kristófer Oliverssyni, formanni fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu, að hægt sé að fara ýmsar leiðir í þessum efnum. „Fyrsta krafa okkar var að óska eftir því að fasteignagjöldin yrðu felld niður á tímum veirunnar. Til vara lögðum við fram þá tillögu, af því að við vitum að sveitarfélögin hafa ekki mikið aflögu, að fasteignagjöldunum yrði dreift með löngu skuldabréfi,“ er haft eftir honum.

Hugmyndin á bak við þetta er að Lánasjóður sveitarfélaga láni sveitarfélögunum upphæð sem samsvarar ógreiddum fasteignagjöldum. Sveitarfélögin myndu síðan gefa út skuldabréf fyrir ógreidd fasteignagjöld fyrir hvert fyrirtæki og yrðu skuldabréfin með lögveði í þeim fasteignum sem fasteignaskatturinn fylgir.

„Kjörin á skuldabréfunum yrðu að vera mjög hagstæð og spegla vexti Lánasjóðs sveitarfélaga. Þannig yrðu vextirnir í flestum tilvikum vel innan við 1%. Ef sú vaxtaprósenta gengi áfram til okkar félagsmanna yrði þetta viðráðanlegt. Um leið myndi tekjustreymið ekki raskast hjá sveitarfélögum,“ er haft eftir Kristófer sem sagði auðvelt að útfæra þessa leið og hann telji að vilji sé hjá ríkisvaldinu til að þetta geti orðið lausn. Lánasjóður sveitarfélaga sé nægilega öflugur til að taka þátt í þessu en hugsanlega þurfi hann að fá ríkisábyrgð til að hægt sé að liðka til fyrir þessari útfærslu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Trump í fyrsta viðtalinu eftir árásina – „Ég á að vera dauður“

Trump í fyrsta viðtalinu eftir árásina – „Ég á að vera dauður“
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir fjölskyldu Viðars – „Setti mig og börnin okkar alltaf í fyrsta sæti“

Safnað fyrir fjölskyldu Viðars – „Setti mig og börnin okkar alltaf í fyrsta sæti“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku fyrir að kýla unnustu sína margsinnis á bílastæði

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku fyrir að kýla unnustu sína margsinnis á bílastæði
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gangandi fólk kemst ekki lengur eftir gangstéttum í Norðurmýri – Bílastæðavandinn mikill

Gangandi fólk kemst ekki lengur eftir gangstéttum í Norðurmýri – Bílastæðavandinn mikill