Það er fátt skemmtilegra en að standa við vatnsbakka, kasta flugu sem maður hefur sjálfur hnýtt og setja í fisk. Þetta segja alla vega krakkarnir í Vogaskóla sem kláruðu nýlega valgrein í fluguhnýtingum.
Krakkarnir sögðu fyrstu tímana ekki hafa verið neitt sérlega skemmtilega enda fátt sem gerðist annað en að vefja tvinna utan um öngul og læra að hnýta einhvern „endahnút“. En eftir þetta byrjaði fjörið. Krakkarnir hnýttu flestir þekktar silungaflugur eftir uppskrift en sumir létu líka sköpunargáfuna bara ráða för eins og sést hér á myndunum (strákarnir sem þekkjast hafa gefið leyfi sitt fyrir myndbirtingu).
Ágúst Tómasson, kennari krakkanna, segir það ekki ókeypis að bjóða upp á svona valgrein í grunnskóla. Það hefði ekki tekist ef Ármenn, stangveiðifélagið í hverfinu, hefðu ekki hlaupið undir bagga með skólanum og lánað þvingur til verksins. Eins hefðu Veiðiflugur á Langholtsvegi styrkt skólann við efniskaup.
Þetta er frábært framtak að bjóða upp á þetta sem Vogaskóla er að gera, fá að hnýta flugur og síðan reyna þær í vötnum eða ám . Flugur sem maður hefur sjálfur hnýtt og fiskurinn tekur.
Hérna er nokkrar myndir frá þessari skemmtilegu valgrein.