fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Eyjan

Svara ekki ítrekuðu boði um að létta álagi af Landspítalanum

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 5. nóvember 2020 07:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heilsumiðstöðin í Ármúla, sem meðal annars rekur sjúkradvöl á Hótel Íslandi, hefur ítrekað boðist til að létta álagi af Landspítalanum með því að taka við fleiri sjúklingum þaðan. Engin formleg svör hafa borist við þessu boði, hvorki frá Sjúkratryggingum Íslands né Landspítalanum.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Haft er eftir Ásdísi Höllu Bragadóttur, framkvæmdastjóra Heilsumiðstöðvarinnar, að hótelið sé nú þegar með rammasamning við Sjúkratryggingar Íslands og því ætti ekki að vera flókið að útvíkka samstarfið nú þegar neyðarástandi hefur verið lýst yfir á spítalanum.

„Samningurinn er í gildi og í raun er ekkert því til fyrirstöðu að taka á móti fleirum og allt er til staðar ef áhugi er fyrir hendi,“

er haft eftir henni. Hún sagði jafnframt að reglulega sé tekið vel í þessa tillögu en engin endanleg afgreiðsla hafi fengist. Um 135 herbergi standa auð á hótelinu að hennar sögn.

Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður forstjóra Landspítalans, sagði í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins að reglulega berist hugmyndir og tillögur um hvernig sé hægt að létta álagi af spítalanum. Þessum tillögum sé vísað til heilbrigðisráðuneytisins sem, ásamt Sjúkratryggingum Íslands, sjái um gerð samninga um þjónustu utan spítalans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur