Jólabjórinn kemur fyrr í sölu í ár en áður. Í ár verða til sölu 88 tegundir af jólabjór og hefst salan í dag. Íslendingar eru afar sólgnir í jólabjór og hafa vissar tegundir á borð við Jóla-Tuborg selst upp ár eftir ár. Má því gera ráð fyrir löngum röðum í verslunum í dag þegar verslanirnar opna kl 11. Fjöldatakmarkanir eru við líði og mega stærstu Vínbúðirnar að hámarki hleypa 35 manns inn í einu.
Sigrún Ósk Sigurðardóttir aðstoðarforstjóri Vínbúðana segir að fleiri jólabjórar verði til sölu í ár heldur en í fyrra. „Nú er búið að samþykkja 88 tegundir af jólabjór. Þar af eru 60 tegundir íslenskar. Þetta eru fleiri vörunúmer þar sem sumar tegundir koma ólíkum umbúðartegundum t.d. dós og flaska. Enn eru ókomnar um 10 tegundir og verða þær ekki fáanlegar alveg strax. Annað jóla er: akvavit, nouveu, glögg, mjöður, gjafapakkar alls 10 vörunúmer, þar af 3 íslensk og 7 innflutt,“ segir Sigrún sem býr sig undir annasaman dag.
Meðal nýrra tegunda eru Gull Lite White ale jólabjór og Grýluhor.
Fólk kemur helst í lok viku- og lok dags
Eftir síðustu reglugerðarbreytingu hafa stærstu Vínbúðirnar að jafnaði ekki hleypt inn fleiri en 35 viðskiptavinum og þær minni færri, allt eftir stærð Vínbúða. Víða á landsbyggðinni er hámarksfjöldi viðskiptavina minni en 10 í Vínbúð. Alls staðar er tveggja metra reglan í hávegum höfð og það er hún sem ræður fjölda viðskiptavina á hverjum stað. Til að koma til móts við óskir sóttvarnaryfirvalda hefur ÁTVR ákveðið að leyfður hámarksfjöldi viðskiptavina verði 25.
Sigrún Ósk segir takmarkanirnar ganga ágætlega. „Viðskiptavinir sýna þeim aðgerðum sem eru í gildi almennt skilning og þolinmæði,“ segir Sigrún og biðlar til fólks að huga að dreifðu álagi. „Við höfum bent á að almennt er minna álag fyrri hluta vikunnar og fyrri hluta dags.“