„Gleymið ræðunum og sjónvarpskappræðunum. Gleymið skoðanakönnununum og því sem sérfræðingar segja. Gleymið auglýsingunum, fjársöfnununum og óheiðarlegu brögðunum. Þetta skiptir engu!“
þetta segir Lichtman sem er prófessor við American University í Washington. Allt frá 1984 hefur hann spáð rétt fyrir um úrslit forsetakosninganna í Bandaríkjunum. Þó kannski með einni undantekningu eða kannski ekki, að minnsta kosti er hann sannfærður um að hann hafði rétt fyrir sér þá.
Fyrir síðustu kosningar, 2016, var Lichtman einn fárra sem spáði Donald Trump sigri yfir Hillary Clinton. Að þessu sinni er hann fullviss um að Trump muni tapa fyrir Joe Biden.
„Í fyrsta sinn síðan George Bush eldri tapaði í kosningunum 1992 mun sitjandi forseti tapa þegar hann sækist eftir endurkjöri. Aldrei fyrr hefur flokkurinn, sem fer með völdin í Hvíta húsinu, upplifað að lán hans hafi snúist svo hratt og dramatískt við eins og nú,“
segir Lichtman.
„Lyklarnir að Hvíta húsinu“ heitir kerfið sem hann notar til að spá fyrir um hver verði næsti forseti Bandaríkjanna. Hann gaf út bók með sama nafni 1996. En kenninguna, sem bókin og spákerfið byggir á, þróaði hann snemma á níunda áratugnum í samvinnu við rússneska jarðskjálftafræðinginn Vladimir Keilis-Borork. Kerfið var sem sagt eiginlega þróað til að spá fyrir um jarðskjálfta.
„Lykillinn er að horfa á stóru myndina. Við lítum á mikilvægustu drifkraftana og horfum fram hjá öllum hávaðanum og smáhlutunum,“
segir Lichtman um kerfið sem byggir á 13 lyklum eða spurningum sem er svarað til að fá niðurstöðu.
Meðal spurninganna er hvort forsetinn sé viðriðinn einhverskonar hneyksli? Er samfélagslegur órói í landinu? Er einhver frambjóðendanna með sérstaklega mikla persónutöfra eða talinn þjóðhetja? Hvernig er staðan í efnahagsmálum, bæði til skamms tíma og langs?
Lichtman segir að hverjar einustu forsetakosningar snúist í raun um þjóðaratkvæðagreiðslu um sitjandi forseta. Þannig hafi það verið frá 1860.
Eins og fyrr sagði spáði hann rétt fyrir um úrslitin 2016 og þegar úrslitin lágu fyrir fékk Lichtman persónulega orðsendingu frá nýkjörnum forseta þar sem sagði: „Vel gert, prófessor!“
New York Times ræddi nýlega við Lichtman um þetta og spá hans fyrir kosningarnar 2000 en þá spáði hann Al Gore sigri en niðurstaðan varð að George W. Bush sigraði. Gore fékk fleiri atkvæði frá kjósendum en tapaði í Flórída með 537 atkvæða mun eftir að dómstólar höfðu fjallað um málið. Lichtman telur að þar sem Gore hafi hlotið fleiri atkvæði hafi hann í raun og veru haft rétt fyrir sér. Þá hafa einnig verið uppi efasemdir um niðurstöðu hæstaréttar um niðurstöður kosninganna í Flórída og margir telja að Gore hafi sigrað í ríkinu.