fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Sakamál: Tveir læknar og eitruð afbrýðisemi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 31. október 2020 21:00

Til vinstri lýtalæknirinn Mike Dixon - Fyrir miðju Dave Shepard - Til hægri Joseph Sonnier

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Joseph Sonnier hafði fundið ástina aftur eftir skilnað þegar hann var myrtur. Hver vildi gera þessum vinsæla, dáða og geðþekka lækni mein? Kærasta hans nefndi til sögunnar afbrýðisama fyrrverandi kærustu en svarið lá annars staðar.

Joseph Sonnier var duglegur og vinsæll læknir í smábænum Lubbock í Texas. Hann hafði um stund sleikt sárin eftir 27 ára hjónaband með konu sem yfirgaf hann fyrir annan mann. Þegar hér var komið sögu hafði Joseph fyrir löngu jafnað sig á skilnaðinum og naut þess að vera einhleypur. Joesph átti tvo syni sem voru fullorðnir og átti hann í góðu sambandi við þá.

Joseph flutti frá Dallas til Lubbock árið 2007, eftir skilnaðinn. Þar varð hann vinsæll og virtur. Hann sótti danstíma og vingaðist við nokkrar konur.

Árið 2011 kynntist Joseph hinni fögru Richelle Shetina. Hún átti fjögur börn. Joseph og Richelle náðu mjög vel saman og urðu náin þó að Joseph væri ekki mjög fús til að giftast aftur.

En í júlí árið 2012 var bundinn snöggur og sorglegur endi á ástir Richelle og Josephs. Snemma að morgni hringdi kona skelfingu lostin í neyðarlínuna. Hún var landslagshönnuður og hafði verið að vinna að verkefni á lóð læknisins. Sá hún að dyrnar voru brotnar upp og heil gluggarúða hafði verið tekin út.

Er lögregla kom á staðinn fannst Joseph látinn. Hann hafði verið skotinn og hlotið margar hnífstungur.

Joseph bjó í rólegu og glæpalausu hverfi. Ekkert hafði verið tekið af heimilinu. Ljóst virtist því frá upphafi rannsóknar að hér lá eitthvað persónulegt að baki.

Fyrri elskhugar kannaðir

Lögreglan ræddi við Richelle Shetina sem var harmi slegin og sagði hún að hefði elskað Joseph heitt. Hún greindi lögreglunni frá því að einhver maður hefði verið að fylgjast með parinu í nokkra mánuði fram að morðinu. Hún þekkti þann mann ekki í sjón.

Þegar Richelle var spurð út í fólk sem gæti verið ósátt út í samband hennar og Josephs nefndi hún til sögunnar konu sem Joseph hefði verið í tygjum við í um sjö ár. Hún hefði hvað eftir annað hringt í Joseph eftir að hann tók saman við Richelle og hellt sér yfir hann. Þegar hann hætti að svara símhringingum frá henni sendi hún honum orðljót textaskilaboð.

En hvað með fyrri elskhuga Richelle? Hún nefndi lýtalækninn Mike Dixon sem bjó í Amarillo, skammt frá Lubbock. Richelle og Mike höfðu átt í sambandi er hann var giftur og hafði sambandið leitt til þess að kona hans skildi við hann. Er Richelle sleit sambandinu við hann tók hann því mjög illa og talið var að hann væri enn ástfanginn af henni.

Lögreglumenn óku frá Lubbock til Amarillo og ræddu málið við Mike. Hann viðurkenndi að hann væri enn mjög hrifinn af Richelle en ekki hvarflaði að honum að myrða vegna þess. Auk þess hefði hann ekki talað við Richelle í marga mánuði. Einnig kom á daginn að Mike hafði fjarvistarsönnun nóttina sem Joseph var myrtur.

Eftir þetta leit út fyrir að Mike Dixon tengdist málinu ekki neitt en annað átti eftir að koma á daginn. Maður að nafni Paul Reynolds kom að máli við lögreglu og sagði frá því að meðleigjandi hans hefði játað fyrir honum að hafa myrt mann í Lubbock og hann hefði síðan reynt að svipta sig lífi. Sagði Reynolds að frásögn mannsins passaði við morðið á Joseph Sonnier eins og greint hefði verið frá því í fjölmiðlum.

Vinur lýtalæknisins

Maðurinn sem Reynolds greindi frá hét Dave Shepard. Sá maður var stórgerður og feitur, fráskilinn og atvinnulaus. Lögregla komst fljótt að því að hann hafði átt í vinfengi við Mike Dixon lýtalækni og leit mjög upp til hans, langaði til að ná langt í lífinu eins og hann, en var órafjarri því. Dave Shepard var með dóma á bakinu, meðal annars fyrir þjófnað.

„Eitthvað gerðist sem olli því að Dave fannst hann þurfa að hefna fyrir Mike,“ sagði Paul Reynolds við lögregluna. Hann sagði lögreglu jafnframt að samkvæmt frásögn Daves Shepard hefði Mike Dixon borgað honum fyrir að myrða Joseph Sonnier.

Dave Shepard játaði undir yfirheyrslum. Hann hafði brotið sér leið inn í húsið, skotið á lækninn og síðan stungið hann mörgum sinnum með hnífi. Jafnframt fundust gögn um textaspjall Daves og lýtalæknisins þar sem sá síðarnefndi virtist hvetja hann til að ljúka verkinu.

Mike Dixon harðneitaði hins vegar að hafa fengið Dave til myrða Joseph Sonnier fyrir sig og sagðist einungis hafa greitt Dave fyrir að fylgjast með parinu og taka af því myndir. Það flækti stöðuna þegar Dave breytti sögu sinni til samræmis við framburð Dixons og sagði Dixon ekki hafa sagt sér að drepa Joseph, það hefði verið hans ákvörðun. Það breytti því ekki að báðir voru fundnir sekir. Dixon tókst að fá áfrýjunarleyfi en var sakfelldur aftur. Báðir mennirnir sitja í ævilöngu fangelsi.

Mörgum þykir sérstakt að vel stæður lýtalæknir skuli hafa ráðið leigumorðingja til að myrða annan lækni, eingöngu út af afbrýðisemi. En margt ótrúlegra hefur gerst en það.

Grein birtist fyrst í tölublaði DV þann 23. okóber 2020

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir
Pressan
Fyrir 4 dögum

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt
Pressan
Fyrir 5 dögum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts
Pressan
Fyrir 6 dögum

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort
Pressan
Fyrir 6 dögum

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin