Það á meðal annars við um stuðningsyfirlýsingu hins íhaldssama dagblaðs The New Hampshire Union sem lýsti yfir stuðningi við Joe Biden í leiðara um helgina. Þetta er í fyrsta sinn í rúmlega 100 ára sögu blaðsins að það lýsir yfir stuðningi við frambjóðanda Demókrata.
„Biden er svo sannarlega ekki sá forseti sem við viljum en árið 2020 er hann forsetinn sem við höfum mikla þörf fyrir. Hann mun verða forseti sem sameinar þjóðina,“
segir í leiðaranum. Ekki er farið eins fögrum orðum um núverandi forseta, Donald Trump.
„Trump forseti hefur ekki alltaf 100% rangt fyrir sér en hann er 100% rangur forseti fyrir Bandaríkin.“
En það er rétt að hafa í huga að lengi hefur andað köldu á milli Trump og The New Hampshire Union. Í kosningunum 2016 lýsti blaðið yfir stuðningi við Gary Johnson, frambjóðanda frjálshyggjuflokksins. Það féll ekki vel í kramið hjá Trump sem lét Joe McQuaid, ritstjóra blaðsins, heyra það:
„Hann er algjör tapari. Það er enginn vafi á því. Hann er mjög óheiðarlegur maður,“
sagði Trump þá að sögn Politico.
Stór meirihluti bandarískra fjölmiðla styður Joe Biden að þessu sinni. Stærsta dagblað landsins, USA Today, hefur í fyrsta sinn í sögunni lýst yfir stuðningi við frambjóðanda og er það Joe Biden sem blaðið hvetur fólk til að kjósa. Fyrir fjórum árum lýsti blaðið ekki yfir stuðningi við neinn en hvatti kjósendur til að kjósa ekki Trump.