Aftonbladet skýrir frá þessu en blaðið hefur um hríð rannsakað mál tengd um 700 mönnum sem lögreglan segir tengjast 30 skipulögðum glæpasamtökum í Stokkhólmi. Af þeim er hægt að tengja 60 menn við um 100 gjaldþrot en þeir sátu í stjórnum fyrirtækjanna. Að minnsta kosti sex af fyrirtækjunum fengu greiddar launastyrk frá hinu opinbera að upphæð 2,7 milljóna sænskra króna.
Rannsókn Aftonbladet leiddi í ljós að byggingafyrirtæki, sem fékk 1,2 milljónir í launatryggingu fyrir nokkrum árum, var stýrt af átta manna stjórn þar sem meirihlutinn hafði hlotið refsidóma, einn þeirra hafði fengið meira en 10 dóma og var augljóslega tengdur Bandidos.
Skiptastjóri hafði lýst því yfir að bóhald fyrirtækisins hafi ekki verið fært í samræmi við lög og reglur og að launakostnaður og annar kostnaður tengdur starfsmönnum hafi verið hærri en tekjur fyrirtækisins.
Nú er mál fyrir dómi í Stokkhólmi þar sem 47 eru ákærðir fyrir að hafa misnotað launatryggingakerfið. Ákæruvaldið telur að viðkomandi hafi svikið sex milljónir sænskra króna út úr kerfinu.