,,Ég er búinn að fara tvisvar og skoða urriðann. Þetta er stórskostleg sjón þarna í Öxará,“ sagði veiðimaður í vikunni. Hann sagðist hafa velt því fyrir sér hvað væru margir urriðar þarna í ánni núna og þeim virðist fjölga með hverju árinu.
,,Það er gaman að fara þarna og sýna sem flestum þetta. Sumir fiskarnir eru boltar þarna,“ sagði veiðimaðurinn og vildi halda því fram að þeir voru nálægt 1500 jafnvel meira.“
Svo virðist sem urriðanum í Þingvallavatni fjölgi bara með hverju árinu sem líður og það verði alltaf fleiri og fleiri stórurriðar sem ganga upp í Öxará á hverju hausti og hrygni. Á mynd sem Árni Geir Pálsson tók fyrir skömmu sýnir hún fjöldan svart á hvítu stöðuna á smá bletti í ánni og þarna er mikill fjöldi.
Fróður maður sem við ræddum við sagði þá allavega vera 2000, þeir eru allavega margir og gaman að skoða þá. Ekki styggja þá mikið og bara hafa gaman af þessu til þess er leikurinn gerður.
Þó slagur sé öllu meiri hjá urriðan sem margir eru stórskaddaðir eftir átökin í ánni.
Mynd. Árni Geir Pálsson.