Íslenskar stjörnur kveðja goðsögnina
Tónlistarmaðurinn David Bowie er látinn, 69 ára að aldri. Bowie snart hug og hjörtu fólks um allan heim og hefur fjöldi manns heiðrað minningu hans síðasta sólarhinginn með fallegum kveðjuorðum. Fjöldamargir þekktir Íslendingar minnast látinnar stjörnu.
Fjölmiðlamaðurinn Sigmar Guðmundsson þakkar Bowie einfaldlega fyrir með lista yfir 15 bestu lög tónlistarmannsins að hans mati:
„Maðurinn með þúsund lúkkin er látinn. Lengi lifi Ziggy Stardust.“
Valur Heiðar Sævarsson tónlistarmaður
„Mikill meistari er fallinn, blessuð sé minning hans. Á svo margar minningar sem tengjast lögunum hans. Óendanlega þakklát fyrir að hafa fengið að upplifa tónlistina hans og texta.“
Birgitta Jónsdóttir Pírati
„Mikill meistari farinn yfir móðuna miklu. Blessuð sé minning Bowie.“
Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður
„Sorgardagur …“
Bo Halldorson
„Planet Earth is blue …
Ég kynntist David Bowie fyrir alvöru í Grænuhlíðinni 1980. Þar bjó Gunnar Örn vinur minn á fyrstu hæð. Í kjallara var sérherbergi og þar ríkti Snorri, eldri bróðir Gunnars. Snorri hélt mikið upp á Bowie, platan Scary Monsters var nýkomin út og hafði snúist látlítið á grammófóni Snorra. Gunnar var á þessum tíma hallur undir blús, en farinn að gefa Bowie gaum eftir trúboð af hendi bróður síns.
Gunnari fannst að ég yrði að heyra þessa nýju skífu og læddumst við niður til Snorra einn eftirmiðdaginn þegar hann var fjarverandi, sem var áhættauatriði því herbergið var forboðið. Þar sátum við drykklengi undir söng Bowies, sem fangaði mig smátt og smátt. Hlýddum við einnig á Lodger og Low.
Við gættum þess auðvitað að setja plöturnar fagmannlega á fóninn, þannig að miðinn skaðaðist ekki, nálina lögðum við varlega niður svo að ekki rispuðust gersemarnar og albúmin höndluðum við eins og hvítvoðunga. Ég efast um að Snorra hafi grunað nokkuð.
Nú sest ég niður með kaffi …“
Stefán Hilmarsson tónlistarmaður
„NOOOOOOOO David just passed away, I have no words … been a HUGE fan of him since I was very little. The world has lost a true legend.“
Svala Björgvins
„Aldrei hvarflað að mér að hann væri dauðlegur.“
Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður
Fyrrverandi bæjarfulltrúi, Margrét Gauja Magnúsdóttir, birtir brot úr kvikmyndinni Labyrinth sem hún segist fyrst hafa séð í Stjörnubíói með Svölu Björgvins. „Svo horfðum viđ hana ca. 10.000 aftur og gerum enn. Takk fyrir allt David Bowie.“
„Vá – hann dó eins og hann lifði – sem listaverk í sjálfu sér. Poppland verður helgað David Bowie í allan dag.“
Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður
„Mikill meistari fallinn frá. David Bowie RIP.“
Kristjana Stefánsdóttir söngkona
„Góða ferð, geimfari.“
Bragi Valdimar Skúlason Baggalútur
Hannes Friðbjarnarson
„Ég fékk ryk í augun í morgun þegar ég las um fráfall David Bowie. Ég var 11 ára þegar ég heyrði lagið Absolut Beginners og um leið fór plakat af honum á vegginn. Svo var ég nokkur ár að vinna mig í gegnum katalóginn sem kom á undan. Varð fyrir gríðarlegum áhrifum og hef alltaf elskað Bowie sem listamann. Hann kenndi manni bæði hvað það er mikilvægt að vera samkvæmur sjálfum sér sem og að það þurfi ekki allt að vera meistaraverk. Þó meirihluti hans verka séu meistaraverk.
Buffið var í eyjum alla helgina og það var merkileg tilviljun að Bowie kom reglulega upp í umræðunni.
Tónleikarnir í Laugardalshöllinni 1996 voru frábærir þó margir hafi orðið fyrir vonbrigðum með að heyra ekki alla hittarana. Bowie var mikilvægara að standa ekki í stað. Alltaf í þróun.
Einn mesti áhrifamaður poppsögunnar og tískunnar.
Takk fyrir mig Starman.“
Hannes Friðbjarnarson tónlistarmaður
„Ég er ekki viss um að ég vilji búa í heimi án David Bowie.“
Björn Teitsson blaðamaður
„Sándtrakk æsku minnar. Far vel meistari Bowie,“ skrifaði útvarpsmaðurinn Frosti Logason og deildi myndbandinu Ashes to Ashes.
„Ég get ekki sagt að ég hafi fengið neitt sérstaklega strangt tónlistarlegt uppeldi. En ef það var eitthvað uppeldi í þessa veru eða foreldrar mínir höfðu sterk áhrif á mig þegar það kom að tónlist þá var það David Bowie. Eitt það síðasta sem ég gerði í gærkvöldi var að hlusta á einhverja a capella útgáfu af Under pressure sem ég rakst á – og dást að röddinni hans (og auðvitað Freddie Mercury). Svo vakna ég og kemst að því að hann er látinn. Ég er í sjokki.
Ég man ennþá eftir því að hafa heyrt Space Oddity í fyrsta skipti. Þetta var e-ð alveg nýtt. Og melodian í Heroes. Out of this world. Og svo er það stíllinn og öll listin í kringum hann.
Megi einn besti tónlistarmaður allra tíma hvíla í friði og tónlistin hans lifa að eilífu.
Let the children lose it
Let the children use it
Let all the children boogie.“
Diljá Ámundadóttir
„Sorgleg tíðindi á mánudagsmorgni. Ég held að Bowie hafi kvatt á þann hátt sem hann vildi í síðustu viku. Snillingur.“
Gunnar Hilmarsson hönnurður
„Mann setur hljóðan. Hinsta kveðja hans til okkar er afar óvænt – en jafn stórfengleg og ætla mátti. Heimurinn er fátækari að honum gengnum. Við lútum í gras. Hvílíkur listamaður!“
Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður