fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Glæpagengi tóku völdin í úthverfi Stokkhólms – Settu á útgöngubann og fylgdu því fast eftir

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 19. október 2020 06:55

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðla sumars settu glæpagengi í Tensta, sem er úthverfi í Stokkhólmi, á útgöngubann fyrir íbúana sem var bannað að yfirgefa heimili sín eftir klukkan 18. Liðsmenn glæpagengjanna fylgdu banninu fast eftir og þorðu fáir að vera á ferli.

TV4 skýrði frá þessu um helgina. Í frétt sjónvarpsstöðvarinnar kemur fram að liðsmenn glæpagengjanna hafi haldið uppi eftirliti í hverfinu og haft í hótunum við fólk ef það virti ekki útgöngubannið.

Málið hófst þann 25. ágúst þegar lögreglumenn, sem voru við eftirlit í hverfinu, sáu að það voru óvenjulega fáir á ferð utandyra í hverfinu sem alla jafna er ansi líflegt. Þegar þeir könnuðu málið betur fékk lögreglan upplýsingar um að glæpagengi hefðu sett útgöngubann í hverfinu.

„Meðlimir í glæpagengjum í hverfinu höfðu tilkynnt íbúunum að þeir mættu ekki yfirgefa heimili sín eftir klukkan 18. Þessi tilkynning breiddist hratt út í hverfinu,“

er haft eftir Therese Rosengren, lögreglustjóra í Rinkeby-Tensta.

Íbúunum var einnig gerð grein fyrir hvaða afleiðingar það hefði að brjóta gegn banninu.

„Þá áttu þeir á hættu að verða beittir grófu ofbeldi,“

sagði Rosengren einnig.

Rinkeby-Tensta hverfið hefur lengi verið í kastljósi fjölmiðla vegna grófs ofbeldis sem glæpagengin hafa beitt þar. Átök þeirra hafa teygt sig út fyrir hverfið og má til dæmis nefna að sumarið 2019 teygðu átökin sig til Herlev í Danmörku þar sem tveir ungir meðlimir eins glæpagengis voru skotnir til bana af meðlimum í öðru glæpagengi úr hverfinu.

Sænska lögreglan segir að sex þekkt glæpagengi starfi í hverfinu sem er um 16 km frá Stokkhólmi.

Ungir meðlimir þeirra, á aldrinum 15 til 25 ára, halda hverfinu í járngreipum og komið hefur til blóðugra átaka og morða á götu úti. Ástæðan er oft persónuleg óvild, hefnd eða barátta um yfirráð á fíkniefnamarkaðinum að mati lögreglunnar. Lögreglan segir að dæmi séu um að börn allt niður í 12 ára séu meðlimir í glæpagengjunum. Lögreglan upplifir að íbúar í hverfinu eru hræddir við vinna með lögreglunni, óttast afleiðingarnar. Meðlimir glæpagengjanna eru aðallega ungt fólk af innflytjendaættum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan
Pressan
Fyrir 5 dögum

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin
Pressan
Fyrir 6 dögum

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu