Húmorinn lengir lífið, sagði einhver og hló. Grín sem viðkemur veirunni skæðu er misvinsælt og misviðeigandi en jólaskraut sem byggir á ástandi heimsins virðist þó ætla að slá í gegn. Það má vissulega sjá skoplegar hliðar á alvarlegu og sorglegu ástandi ef litið er til dæmis til magninnkaupa á klósettpappír en honum er nú skammtað í Bandaríkjunum vegna áhlaupa á klósettpappírsdeildina.
Fjöldi fólks er nú farinn að kaupa sér jólatrésskraut, með skírskotunum í ýmsar aðstæður sem skapast hafa í kringum kórónaveirufaraldurinn. Svo sem fyrrnefnda söfnun heimsbyggðarinnar á klósettpappír. Margir virtust hræðast það einna mest að enginn klósettpappír yrði fáanlegur. Grímuklæddur jólasveinar eru einnig að gera það gott, sem og hugljúfar kveðjur til heilbrigðisstarfsfólks.
TREYSTUM FAUCI
Læknirinn Anthony Fauci, sem leiðir sóttvarnateymi Hvíta hússins, hefur ítrekað varað Bandaríkjastjórn og forsetann við COVID-19 sjúkdómnum og talað um að herða þurfi sóttvarnareglur þar í landi, en Bandaríkin hafa farið afar illa út úr faraldrinum. Á læknasloppnum stendur: Við treystum á Fauci. Einnig fæst læknirinn vinsæli úr mjúku efni á shoplightspeed.com og líkist hann þá lítilli dúkku. Nú er bara spurning: Hver hendir sér í að sauma þríeykið fyrir jólin?
Verð: 19.99 $
Seljandi: callisterschristmas.com
LÆKNIR OG HJÚKKA
Þetta skraut er falleg gjöf handa læknum og hjúkrunarfræðingum á jólagjafalistann, en það er reyndar óþolandi að aðeins sé hægt að fá lækninn karlkyns og hjúkkuna kvenkyns. Engu að síður falleg skilaboð: „Við mættum í vinnuna fyrir þig, og þú varst heima fyrir okkur.“
Verð: Frá 60 $
Seljandi: Amazon.com
SPRITTBRÚSINN GÓÐI
Það eru ófáir sem hafa hamstrað spritt síðustu mánuði og vilja líklega ekki eyða meiri peningum í að kaupa glersprittbrúsa til að skreyta jólatréð með. Eða hvað? Jólasprittbrúsinn mokselst og er uppseldur í bili.
Verð: 19.99 $
Seljandi: callisterschristmas.com
GRÍMUSVEINNINN
Mynd af þessu jólaskrauti hefur farið sem eldur í sinu og skrautið er nú víða uppselt. Brothætt eins og lífið sjálft, en fallegt á köflum og minning um erfiða tíma. Í umsögn um skrautið er tekið fram að þó það sjáist ekki sé jólasveinninn brosandi.
Verð: 21.99 $
Seljandi: callisterschristmas.com
FJARFUNDARKONAN
Heimavinnan er vinsælt efni í jólaskrauti í ár, en á síðunni personalizedornamentsforyou.com er hægt að velja úr alls kyns einangrunar/sóttkvíar/COVID/klósettpappírsjólaskrauti. Einnig er hægt að bæta grímu við alls kyns hefðbundnar fígúrur. Þarna má vissulega eyða tíma og fjármunum, sé fólk blúsað í sóttkví.
Verð: Frá 15 $
Seljandi: personalizedornamentsforyou.com
GRÍMUKLÆDD FJÖLSKYLDA Á TRÉÐCOVID
Fjölskylda með grímur til að hengja á tré, virðist seljast vel á amazon.com. Skrautið kostar frá 12 dollurum, en hægt er að fá með þremur eða fjórum fjölskyldumeðlimum. Pláss er á klósettpappírsrenningnum til að skrifa nöfn fjölskyldumeðlima undir hvern og einn.
Verð: Frá 11.99 $
Seljandi: Amazon.com
Annað grínerí: