fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Fókus

„Ef þú ert ekki sammála háværum hópi af réttlætisriddurum, þá ertu bara gerður útlægur“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 13. október 2020 11:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frosti Logason fjölmiðlamaður er nýjasti gestur Sölva Tryggvasonar í Podcasti Sölva. Frosti, sem varð fyrst þekktur í hljómsveitinni Mínus hefur unnið nánast allan sinn starfsferil á fjölmiðlum. Hann hefur lengi verið þekktur fyrir að taka viðtöl við alls kyns fólk, líka þá sem eru með óvinsælar skoðanir.

„Eitt af því mest óþolandi sem ég heyri er þegar fólk segir: „Hvað eruð þið að gefa þessum aðila „platform“, þetta er bara einhver brjálæðingur.“ Auðvitað tekur maður ekki viðtöl við fólk sem er veikt á geði eða eitthvað slíkt, en það er óþolandi þegar fólk með óvinsælar skoðanir er úhrópað á þann hátt að það sé ekki nógu merkilegt til að vera í fjölmiðlum og fjölmiðlar eigi að passa að það komist ekki að. Þetta finnst mér fáránlegur misskilingur á eðli fjölmiðla. Ég hika ekki við að fara á móti þessum straumi þó að maður fái mikinn skít fyrir það. Ég hef áhuga á fólki, hugmyndum og samfélaginu og okkur í Harmageddon finnst ekkert vera óviðkomandi hlustendum okkar. Sérstaklega þegar það eru einhverjar skrýtnar og öðruvísi skoðanir. Samfélagið er svolítið brennt af því að umræðan er mjög einsleit og inni í boxi. Ef þú ert ekki sammála háværum hópi af réttlætisriddurum, þá ertu bara gerður útlægur. Þetta er óþolandi ástand,“ segir Frosti.

Byrjaði snemma í fjölmiðlum

Frosti hefur nær eingöngu unnið við fjölmiðla og það byrjaði snemma.

„Þegar ég var 11 eða 12 ára byrjaði ég að bera út DV og selja DV á Garðatorgi og ég man að ég var mjög stoltur af því að vinna hjá þeim. Þegar ég kláraði fjölbraut var ég að vinna við útkeyrslu hjá Fróða við að keyra út tímaritin og fannst það frábært og svo fór ég á X-ið, þar sem ég byrjaði með vikulegan þungarokksþátt. Máni var með hann fyrst, en ég var alltaf að láta hann hafa efni til að spila í þættinum af því að hann hafði ekki hundsvit á þungarokki. En þegar Mínus vann músíktilraunir fékk ég þáttinn og fljótlega varð þetta að fullu starfi á X-inu. En svo fékk ég að vera á Fókus, Popptíví og alls konar fleiru í gegnum tíðina, en X-ið hefur alltaf verið kjarninn,“ segir hann.

Stuð á Dominos

Í viðtalinu segir hann jafnframt frá því hvernig starfsferillinn hans hófst.

„Ég vann á Dominos með námi í fjölbrautaskóla. Ég byrjaði nokkrum vikum fyrir sautján ára afmælisdaginn minn að brjóta saman kassa. Ég man að Tóti sem var þá framkvæmdastjóri, kom að mér og spurði mig: „Af hverju ertu svona hræddur. Það er enginn að fara að bíta þig.“ Þá var ég þarna eins og mús á bakvið að brjóta saman kassa. Ég elskaði Bandaríkin svo mikið að mér fannst geggjað að vinna fyrir Dominos þegar þeir voru nýkomnir til Íslands. Daginn sem ég fékk bílprófið mitt var ég í vinnunni og fyrsti aksturinn minn með ökuskírteinið var með pizzu í bílnum í vinnunni fyrir Dominos. Ég var að farast úr stressi. En ég vann þarna í dáldinn tíma og vann mig upp. Fyrst sendill, svo bakari, svo vaktstjóri og svo átti að gera mig að verslunarstjóra þegar ég hætti. En þetta var minn vinnuskóli.“

Frosti hefur um árabil haldið úti þættinum Harmageddon ásamt félaga sínum Þorkatli Mána Péturssyni. Þátturinn er þekktur fyrir að hleypa í loftið fólki með óvinsælar skoðanir og ræða málin tæpitungulaust. Í viðtalinu ræða Frosti og Sölvi um mikilvægi þess að stoppa ritskoðun í fjölmiðlum, tímabilið þar sem Frosti var lykilmaður í hljómsveitinni Mínus, mikilvægi þessi að taka ábyrgð í lífinu og margt margt fleira.

Viðtalið í heild má sjá hér að neðan. Þú getur einnig hlustað á það á Spotify.

https://www.youtube.com/watch?v=tSkGMQ5-pLM&t=1960s

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Þjófstartaði afmælinu með Bridgerton-þema – Eiginmaðurinn hvergi sjáanlegur

Þjófstartaði afmælinu með Bridgerton-þema – Eiginmaðurinn hvergi sjáanlegur
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Var komin á þann stað að mér leið eins og ég væri að panta mér vanlíðan á Amazon“

„Var komin á þann stað að mér leið eins og ég væri að panta mér vanlíðan á Amazon“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sex hversdagslegar kynlífsupplifanir sem karlmenn þrá en þora ekki að biðja um

Sex hversdagslegar kynlífsupplifanir sem karlmenn þrá en þora ekki að biðja um
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ferill Katy Perry riðar til falls eftir heimskulegar ákvarðanir

Ferill Katy Perry riðar til falls eftir heimskulegar ákvarðanir
Fókus
Fyrir 5 dögum

Stórleikarinn hefur ekki notað algenga snyrtivöru í tugi ára

Stórleikarinn hefur ekki notað algenga snyrtivöru í tugi ára
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mía sér um afþreyingu fyrir börnin

Mía sér um afþreyingu fyrir börnin