Hann var handtekinn þann 30. september fyrir ósiðsamlega hegðun að sögn lögreglunnar í Pearl River. Skömmu fyrir handtökuna undraði vegfarandi einn sig á því að ljósin væru kveikt í kirkjunni svona seint að kvöldi þar sem enginn var vanur að vera þar á kvöldin.
Vegfarandinn kíkti því inn um glugga og sá þá að verið var að stunda kynlíf á altarinu. Nola.com skýrir frá þessu. Vegfarandinn tók símann sinn upp og tók upp kynlíf tveggja kvenna, sem fór fram á altarinu. Nola.com segir að búið sé að opinbera nokkur málsskjöl. Þar komi meðal annars fram að konurnar tvær hafi stundað kynlíf með prestinum, Travis Clark, sem hafi verið nær nakinn í kirkjunni.
Við hliðina á altarinu var búið að koma fyrir þrífæti með síma til að taka allt upp. Á altarinu lágu síðan ýmis kynlífsleikföng.
Vegfarandinn hringdi í lögregluna sem handtók Clark og konurnar.
Clark hafði þjónað söfnuðinum síðan á síðasta ári. Hann var sviptur embætti daginn eftir handtökuna.