Utanríkismálanefndin fundaði á þriðjudaginn og fór fundurinn fram á netinu og var hinni fölsku Tsikhanouskaya boðið að taka þátt eftir að „starfsmaður“ hennar hafði sett sig í samband við danska þingið. Þarna voru á ferðinni tveir rússneskir grínistar, sem kalla sig Vovan og Lexus, og léku þeir hlutverk Tsikhanouskaya á fundinum. Þeir voru ekki í mynd því þeir sögðu þingmönnunum að bilun hefði komið upp í fjarfundabúnaði þeirra og virtist það ekki vekja neinar grunsemdir hjá dönsku þingmönnunum..
Í fyrstu var rætt um rússnesku gasleiðsluna Nordstream 2 og pólitískan óróleika í Hvíta-Rússlandi. En eftir um 25 mínútur breyttist umræðuefnið og tvær grímur fóru að renna á Danina. Þá byrjaði Tsikhanouskaya allt í einu að spyrja út í „dýravændishús“ í Danmörku.
„Hún sagðist hafa mikinn áhuga á dýravelferð og af þeim sökum hafi hún áhyggjur af skýrslum sem segja að dýravændishús séu í Danmörku,“
sagði Michael Aastrup Jensen, þingmaður Venstre, um fundinn í samtali við Jótlandspóstinn. Hann svaraði að hér væri um rússneskar lygafréttir að ræða en fréttum af þessu tagi hefur nokkrum sinnum verið dreift í Rússlandi. Jensen sagðist ekki hafa grunað að neitt óeðlilegt væri í gangi fyrr en umræðan barst að dýravændishúsum. Fundurinn hélt áfram í um 15 mínútur til viðbótar en fundarmenn urðu sífellt sannfærðari um að eitthvað væri nú skrýtið við þetta og bundu að lokum endi á fundinn.
Rússnesku grínistarnir hafa viðurkennt að hafa staðið á bak við þetta og segjast ætla að birta upptöku af fundinum í dag. Vovan og Lexus heita í raun Vladimir Kuznetsov og Alexey Stolyarov og hafa áður blekkt þekkt fólk og birt upptökur á YouTuberás sinni. Þar má til dæmis heyra þegar þeir blekktu Erdogan, Tyrklandsforseta, Bernie Sanders og Harry Bretaprins. Allir þrír voru blekktir til að halda að þeir væru að ræða við sænska umhverfisverndarsinnan Greta Thunberg í síma.