fbpx
Föstudagur 14.mars 2025
Fréttir

Lög voru brotin þegar Jóni Baldvin voru veittar viðkvæmar upplýsingar um Aldísi

Erla Dóra Magnúsdóttir
Föstudaginn 9. október 2020 16:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu braut gegn persónuverndarlögum þegar Hörður Jóhannesson, sem var aðstoðarlögreglustjóri árið 2012, veitti Jóni Baldvini Hannibalssyni aðgang að gögnum sem vörðuð dóttur hans, Aldísi Schram. Mbl.is greinir frá.

Hörður veitti Jóni Baldvini aðgang að persónuupplýsingum um Aldísi í skjali sem bar yfirskriftina „Til þess er málið varðar“. Í þessu skjali mátti meðal annars fyrra upplýsingar um að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi nokkru sinnum þurft að hafa afskipti af Aldísi fyrir tilstuðlan foreldra hennar, Jóns Baldvins og Bryndísar Schram.

Jón Baldvin framvísaði ofangreindu skjali í þætti Egils Helgasonar, Silfrið, í febrúar á síðasta ári og birti í kjölfarið í grein í Morgunblaðinu. Aldís Schram kvartaði þá til persónuverndar vegna vinnslu embættis lögreglustjóra á persónuupplýsingum hennar.

Í Kvörtun Aldísar segir að hún hafi verið beitt þvingaðri lyfjagjöf vegna meints þunglyndis og vistuð á geðdeild í tvo mánuði að beiðni Jóns Baldvins. Jón Baldvin var á þeim tíma sendiherra. Jón Baldvin mun hafa fengið Hauk Guðmundsson, þáverandi ráðuneytisstjóra innanríkisráðuneytisins til að skrifa upp á beiðni um að Aldís yrði nauðungarvistuð.

Aldís segir jafnframt í kvörtun að fimm sinnum hafi hún mátt sæta handtöku af hálfu lögreglunnar en þrjár þeirra hafi verið óskráðar í kerfum lögreglunnar. Eins var handtaka sem lögmaður Aldísar afstýrði skráð sem „aðstoð við erlend sendiráð“ í kerfum lögreglunnar, en Jón Baldvin var þá sendiherra á Spáni.

Í svari embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu vegna kvörtunar Aldísar kemur fram að umræddar upplýsingar sem Jóni Baldvin voru veittar hafi ekki verið varðveittar í skjalavörslukerfi embættisins og embættið hafi því ekki upplýsingar um forsendur afgreiðslunnar og geti því ekki tekið afstöðu til kvörtunarinnar.

Persónuvernd rekur að embætti lögreglustjóra hafi verið ábyrgðaraðili að vinnslu persónuupplýsinganna og umræddar upplýsingar hafi verið viðkvæms eðlis.

Persónuvernd rekur að embætti lögreglustjóra geti ekki skýrt í hvaða tilgangi upplýsingarnar voru veittar og hvers vegna. Einstaklingar eigi almennt að geta treyst því að upplýsingar sem lögregla skráir um verkefni sem hún sinnir vegna þeirra verði ekki miðlað til óviðkomandi aðila.

„Þar sem [embætti lögreglustjóra] hafi miðlað umræddum upplýsingum um kvartanda án heimildar hafi embættið ekki unnið með upplýsingarnar með sanngjörnum, málefnalegum og lögmætum hætti“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Afbrotafræðingur tjáir sig um tálbeituaðgerðir í ljósi manndrápsmálsins – „Villta vestrið leysir ekki málin og notkun tálbeitu er varasöm“

Afbrotafræðingur tjáir sig um tálbeituaðgerðir í ljósi manndrápsmálsins – „Villta vestrið leysir ekki málin og notkun tálbeitu er varasöm“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Sofia fannst látin – Meintur gerandi hennar lést áður en til ákæru kom

Sofia fannst látin – Meintur gerandi hennar lést áður en til ákæru kom
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Enn ein svikasíðan í skjóli á Kalkofnsveginum – Logið upp á fræga leikkonu

Enn ein svikasíðan í skjóli á Kalkofnsveginum – Logið upp á fræga leikkonu
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Elliði tjáir sig um manndrápsmálið – „Eftir voveifilegan atburð getur samfélagið fundið leiðir til að standa saman“

Elliði tjáir sig um manndrápsmálið – „Eftir voveifilegan atburð getur samfélagið fundið leiðir til að standa saman“
Fréttir
Í gær

Alfreð Erling sýknaður – Gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun

Alfreð Erling sýknaður – Gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun
Fréttir
Í gær

Guðni segir að Sigurður Ingi þurfi að herða sig: „Ekkert markvert hefur heyrst frá formanni flokksins“

Guðni segir að Sigurður Ingi þurfi að herða sig: „Ekkert markvert hefur heyrst frá formanni flokksins“