,,Við erum að fara austur í sjóbirting, gott veður ennþá og veiðin er ágæt víða. Þetta verður bara fjör,“ sagði veiðimaður sem tók undir stökk úr veiðibúðinni með flugur í boxi. Hann var klár með grímuna og annað í veiðiferðina.
Það er víða hægt að veiða ennþá, eins og í Ytri og Eystri Rangá meðal annars Þar hefur veiðin verið ágæt en oft verið meira af sjóbirtingi.
Já, sjóbirtingurinn er á fullu ennþá fyrir austan. Leirá í Leirársveit er ennþá í gangi og þar hafa verið að veiðast sjóbirtingar og laxar. Tíðarfarið er mjög gott og útiveran er verulega góð þessa dagana. Veðurspáin er ágæt næstu daga.
Mynd. Fjör við Ytri Rangá sem verður opin til 20. október.