Hawke fékk hjartaáfall eftir að Wauters setti slöngu niður í vélinda hennar í stað barkans. Hún áttaði sig ekki á mistökunum þrátt fyrir að Hawke hafi kastað upp og öskrað af sársauka. The Guardian skýrir frá þessu.
Barnið, drengur, fæddist þennan örlagaríka dag í september 2014 en Hawke vaknaði ekki upp af dái þrátt fyrir tilraunir heilbrigðisstarfsfólks til að koma henni til meðvitundar. Hún lést fjórum dögum síðar, hún komst aldrei til meðvitundar og sá því son sinn aldrei.
Wauters, 53 ára, var á vakt sem svæfingalæknir á Orthez sjúkrahúsinu í Frakklandi þegar ákveðið var að gera bráðakeisaraskurð á Hawke. Wauters sagði lögreglunni að hún hefði verið að drekka áfengi með vinum sínum þegar hún var kölluð út til að aðstoða við aðgerðina. Rannsókn leiddi í ljós að áfengismagnið í blóði hennar var tvöfalt meira en leyfilegt er til að mega aka bifreið. Hún viðurkenndi að hún glímdi við áfengisvanda og hafi alltaf verið með áfengi á sér. Hún sagðist ekki hafa fundið til áfengisáhrifa þegar hún mætti til vinnu.
Hún á allt að þriggja ára fangelsi yfir höfði sér ef hún verður fundin sek og sekt upp á 75.000 evrur.