94 smit hafa verið staðfest innanlands af þeim sýnum sem tekin voru í gær, þetta segir Jóhann K. Jóhannsson samskiptastjóri almannavarna í samtali við mbl.is. 86 smitanna greindust innanlands en 8 á landamærum en óstaðfest er hvort þau séu virk.
Upplýsingafundur Almannavarna er klukkan 11 þar sem nánar verður farið yfir stöðu mála.
Fjöldi ráðamanna og kvenna hefur tjáð sig opinberlega síðustu sólarhringa og biðlað til fólks að nota grímur. Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar hefur mælst til þess að fólk noti grímur alls staðar og forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson birti mynd af sér með grímu og bað fólk að fara eftir tilmælum í stað þess að velta vöngum yfir því hvað hefði mátt gera öðruvísi. Það sé seinni tíma mál.
Almannavarnir hafa ítrekað að fólk noti grímurnar rétt en leiðbeiningar má sjá hér í myndbandinu að neðan.