Fram kemur að skólinn verði lokaður til að gæta fyllsta öryggis og varúðar. Ekki sé um formlega sóttkví að ræða hjá öðrum en þeim sem teljast hafa verið útsettir fyrir smiti og fá tilkynningu um það.
Ákvörðunin um að hafa skólann lokaðan meðan verið er að leggja mat á útbreiðslu smitsins var tekin í samráði við smitrakningarteymið að því er segir í tilkynningunni.
Nánari upplýsingar verða sendar til foreldra og forráðamanna um leið og þær liggja fyrir.