Chelsey Whiston 27 ára gömul móðir í Bretlandi var búin að reyna allt sem henni datt í hug til að losna við blett úr uppáhalds bol sonar síns samkvæmt frétt The Sun. Whiston hafði reynt öll hefðbundin „töfraefni“ á borð við pink stuff, Vanish og Elbow Grease. Ekkert virkaði til fulls.
Bletturinn stafaði af frostpinna og var mjög þrálátur. Allt kom fyrir ekki og bletturinn sat sem fastast litla dregnum til mikillar óhamingju.
Þá var henni bent á að þvo bolinn og hengja hann út rakann til þerris þannig að sól skini beint á blettinn. Viti menn það snar virkaði!„Þetta virkar og kostar ekkert. Stundum hefur bletturinn ekki alveg farið og þá hef ég endurtekið leikinn. Nú geri ég þetta alltaf ef ég er með fastan blett,“ segir Whiston og bendir á þetta sé ódýr og góð leið.