fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024

Veiðarnar á hreindýrum gengu vel

Gunnar Bender
Mánudaginn 28. september 2020 10:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Seinasti veiðidagur haustveiða var sunnudagurinn 20. september. Kvóti þessa árs var 1325 dýr, 805 kýr og 520 tarfar.  Felld voru 1264 dýr og ekki náðist að fella 11 kýr og 2 tarfa af útgefnum kvóta sem veiða átti nú í haust. 48 kýr eru svo í úthlutuðum leyfum í nóvember á svæði 8 og svæði 9.

Á vef Umhverfisstofnunnar kemur fram að veiðarnar gengu vel þó þær færu eins og áður frekar rólega af stað. Mikið af kvótanum var felldur eftir 20. ágúst. Veðrið var veiðimönnum einstaklega hagstætt þetta veiðitímabilið og lítið um þoktíð. Seinustu vikur veiðitímans var veðrið gott á öllum svæðum.

Alltaf er töluvert um að leyfum sé skilað inn eftir að veiðitímabil hefst en byrja má að veiða tarfa 15. júlí og kýr 1. ágúst. 74 einstaklingar þáðu leyfi sem þeim voru úthlutuð á biðlista eftir að veiðar hófust og 212 einstaklingum var boðið að taka leyfi. Töluverð óvissa var í sumar um hvort Covid veiran myndi setja mark sitt á tímabilið að einhverju leyti, en er það mat okkar hjá Umhverfisstofnun að svo hafi ekki verið. Ekki var mörgum leyfum skilað inn sem rekja má til sóttvarna eða takmarkana tengdum þeim.  Nokkrir veiðileyfishafar búsettir erlendis skiluðu þó inn sínum leyfum af þeim sökum.

Nánari upplýsingar um veiðar hvers svæðis má sjá í töflu um lokastöðu veiða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Var leikmaður Liverpool að skjóta á Klopp? – ,,Aldrei verið ánægðari“

Var leikmaður Liverpool að skjóta á Klopp? – ,,Aldrei verið ánægðari“
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Eyddu 8-9 milljónum í brúðkaupið en sjá ekki eftir því

Eyddu 8-9 milljónum í brúðkaupið en sjá ekki eftir því
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Nýnasistar á Norðurlöndum laða að meðlimi í bardagaklúbba – „White Boy Summer Fest“

Nýnasistar á Norðurlöndum laða að meðlimi í bardagaklúbba – „White Boy Summer Fest“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Eyja með gömlu hervirki til sölu – Fimmtán draugar búa þar

Eyja með gömlu hervirki til sölu – Fimmtán draugar búa þar
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Slot gefur sama svarið: ,,Megið halda áfram að reyna“

Slot gefur sama svarið: ,,Megið halda áfram að reyna“