fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024
Eyjan

Verkalýðsforysta á villigötum – Engar lausnir, aðeins hótanir

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 25. september 2020 08:00

Hörður Ægisson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í grein, sem Hörður Ægisson ritstjóri Markaðar Fréttablaðsins skrifar í Fréttablaðið í dag, gagnrýnir hann verkalýðsforystuna fyrir afstöðu hennar til Lífskjarasamningsins í ljósi stöðunnar í efnahagsmálum þjóðarinnar og segir hana vera á villigötum. Grein Harðar ber yfirskriftina „Á villigötum“.

Hann segir að þegar Lífskjarasamningurinn var undirritaður vorið 2019 hafi verið fallist á meiri launahækkanir en innistæða var fyrir gegn því að gerður var langur kjarasamningur og vegna væntinga um að vextir myndu lækka ef stöðugleiki á vinnumarkaði yrði tryggður. Nú hafi allar efnahagslegar forsendur samningsins brostið en þær grundvölluðust á áframhaldandi hagvexti og aukinni verðmætasköpun.

„Birtingarmynd þessarar mestu kreppu í hundrað ár er meðal annars tíu prósenta atvinnuleysi, 300 milljarða samdráttur í landsframleiðslu og hrun í útflutningstekjum þjóðarbúsins. Meirihluti aðildarfyrirtækja SA mun meta það sem svo að þau hafi litlu að tapa að slíta samningnum. Efnahagsstefna verkalýðshreyfingarinnar er á villigötum og grundvallast á rangri greiningu á vandanum,“

segir Hörður og bætir við að ekki sé um hefðbundna eftirspurnarkreppu að ræða heldur vanda vegna framboðsskells af völdum sóttvarnaraðgerða. Af þessum sökum hafi verðmætasköpun í hagkerfinu dregist mjög saman.

„Með lækkun vaxta og auknum ríkisútgjöldum hefur höggið verið mildað, með því að reyna að halda uppi eftirspurn og lækka fjármagnskostnað heimila og fyrirtækja, en stærsta áskorunin – ætli okkur að takast að búa til störf og minnka atvinnuleysi – er að draga úr óvissu og fá atvinnulífið til að fjárfesta á ný. Það mun ekki gerast með því að knýja fram launahækkanir með fjármunum sem fyrirtækin eiga ekki til með þeim afleiðingum að atvinnuleysi mun aukast enn og verðbólgan hækka. Þeim efnahagslögmálum hefur ekki verið kippt úr sambandi,“

segir Hörður og víkur síðan að verkalýðshreyfingunni:

„Skilningsleysi verkalýðshreyfingarinnar á stöðunni er átakanlegt. Hún hefur verið yfirtekin af fólki sem er heltekið af úreltri og hættulegri hugmyndafræði um viðvarandi stéttaátök. Sé það gagnrýnt hefur það fátt annað fram að færa en skítkast og gífuryrði í garð fólks sem er því ósammála um hvaða leiðir sé skynsamlegt að fara til að bæta lífskjör í landinu. Seðlabankastjóri, sem hefur staðið sig vel á erfiðum tímum, er þannig uppnefndur „einn af hrun-prinsunum“ fyrir það eitt að hafa starfað í greiningardeild í banka og varaformanni stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, sem hefur stýrt fjölskyldufyrirtæki farsællega til margra ára og farið fyrir Samtökum iðnaðarins, er sagt að snúa sér að því sem hún geri best, að framleiða ís – þegar hún leyfir sér að hafa skoðanir á hagsmunum sjóðfélaga,“

segir Hörður og bætir við að framganga formanna VR og Eflingar, sem séu stærstu stéttarfélög landsins, sé þeim til skammar en þeim standi örugglega á sama. Hann segir síðan að í fyrri efnahagskreppum hafi aðilar vinnumarkaðarins ásamt stjórnvöldum starfað saman og leitað lausna til að lágmarka skaðann en nú horfi öðruvísi við.

„Frá forsvarsmönnum verkalýðshreyfingarinnar koma engar tillögur að lausnum, aðeins hótanir ef ekki verður fallist á launahækkanir í dýpstu niðursveiflu lýðveldissögunnar. Í stað þess að horfast í augu við raunveruleikann, sem lýsir sér meðal annars í því að um þrjátíu þúsund manns verða án atvinnu þegar líður á veturinn, hafa þeir kosið að fara einföldu leiðina og taka á sig enga ábyrgð. Verði þeim að því,“

segir hann að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Arion banki sá að sér eftir að upp úr sauð á Fjármálatips

Arion banki sá að sér eftir að upp úr sauð á Fjármálatips
Eyjan
Í gær

Gunnar bendir á sláandi staðreynd um stýrivextina – „Hvergi í veröldinni er auður hinna ríku varinn af eins miklum ákafa“

Gunnar bendir á sláandi staðreynd um stýrivextina – „Hvergi í veröldinni er auður hinna ríku varinn af eins miklum ákafa“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Kosningar: Lilja og Alma takast á um skatta og innviðafjárfestingu

Kosningar: Lilja og Alma takast á um skatta og innviðafjárfestingu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Bregðast við stjórnarskrárbroti Alþingis – „Þetta er hið raunverulega andlit og arfleifð Sjálfstæðisflokksins“

Bregðast við stjórnarskrárbroti Alþingis – „Þetta er hið raunverulega andlit og arfleifð Sjálfstæðisflokksins“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ragnar segir tíma til kominn að þora að spyrja stóru spurninganna um lífeyrissjóðina – „Við erum þrælar eigin kerfis“

Ragnar segir tíma til kominn að þora að spyrja stóru spurninganna um lífeyrissjóðina – „Við erum þrælar eigin kerfis“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þingkosningar: Lilja segir ríkisstjórnina hafa fjárfest mikið í innviðum – Alma segir innviðskuldina ógna orkuskiptum

Þingkosningar: Lilja segir ríkisstjórnina hafa fjárfest mikið í innviðum – Alma segir innviðskuldina ógna orkuskiptum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 4 um ESB/evru: Þýzkaland tók evru fram yfir sitt ofursterka mark (DM) – hvað segir það okkur?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 4 um ESB/evru: Þýzkaland tók evru fram yfir sitt ofursterka mark (DM) – hvað segir það okkur?