Veiðin togast áfram þessa dagana. Vatnið hefur aukist en veiðin kannski ekki alveg nóg en veiðimenn eru ennþá að reyna víða um land í kulda og trekki. Í Víðidalnum var tveggja stiga hiti í gær en þá veiddist sá stóri samt. Veiðimaðurinn klóki Kristján Jónsson frá Blönduósi veiddi 107 sentimetra í Efri-Kæli.
Lokatölurnar streyma inn þessa dagana. Kíkjum aðeins nánar á þær. Haffjarðará endaði í 1126 löxum sem er frábær veiði á sex stangir. Í Vopnafirðinum fór Hofsá og Sunnudalsá yfir þúsund laxa eða 1017 laxa. Norðurá endaði í 979 löxum sem er töluvert betra en í fyrra.
Laxá á Ásum endaði í 675 löxum þetta sumarið og Elliðaárnar í 565 löxum. Laxá í Aðaldal, drottningin sjálf, endaði í sorglega lágri tölu, eða 382 löxum. Þetta er tala sem aldrei hefur sést þarna áður.Vonandi sjást aldrei aftur svona tölur þaðan aftur. En svona er þetta bara, tölur eru bara tölur, en þær mega lagast í nokkrum veiðiám, svo um munar.
Mynd. Lokatölur eru að streyma inn úr veiðiánum enda veiðinni að ljúka þessa dagana.