fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024
Eyjan

Telur orkuverð til stóriðju of hátt – Svört spá um framtíð álveranna hér á landi

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 24. september 2020 07:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Endurnýjun raforkusamninga við stórnotendur rafmagns hér á landi á síðustu árum hafa gert að verkum að raforkuverð er ekki lengur samkeppnishæft við verðið erlendis. Þetta mun valda því að fleiri stórnotendur, hér á landi, munu lenda í rekstrarvanda á næstunni.

Þetta kemur meðal annars fram í umsögn Bjarna Bjarnasonar, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, um kerfisáætlun Landsnets fyrir árin 2020-2029. Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Blaðið segir að í umsögninni komi fram að bæði kísilverinn hér á landi, við Helguvík og á Bakka, hafi nýlega stöðvað framleiðslu. Einnig hafi Rio Tinto í Straumsvík dregið mjög úr framleiðslu. Einnig hafa gagnaver dregið úr rafmagnskaupum um þriðjung. Samdráttur í orkukaupum nemur 1,5 teravattstundum á ári sem svarar til um 7,5% af árlegri vinnslugetu raforku hér á landi.

Í umsögn Bjarna kemur einnig fram að „ekki sé ólíklegt að álveri Rio Tinto verði lokað á næstunni“ sem myndi hafa í för með sér að 22% af þeirri raforku sem er hægt að vinna á landinu miðað við núverandi uppsett verð seljist ekki. Fréttablaðið segir að í umsögn Bjarna komi einnig fram að álmarkaðurinn sé erfiður um allan heim núna vegna mikillar uppbyggingar hans í Kína. Ekkert bendi til að sú staða breytist á næstunni. Hann segir einnig að áliðnaður á Vesturlöndum gæti hugsanlega lagst af ef staða álmarkaða lagast ekki á næstu árum. Þetta eigi hugsanlega við um álverin á Reyðarfirði og Grundartanga.

Umsögn Bjarna er tilkomin vegna fyrirætlana Landsnets um að fjárfesta í flutningskerfi raforku fyrir 90 milljarða á næstu tíu árum. Fréttablaðið hefur eftir honum að þetta myndi valda því að efnahagsreikningur Landsnets myndi um það bil tvöfaldast. Flutningskostnaður, sem viðskiptavinir Landsnets greiða, er aðallega ákvarðaður út frá eignastofni fyrirtækisins og því myndi flutningskostnaðurinn óumflýjanlega hækka.

„Sumir stórnotendur rafmagns á Íslandi eru þegar við sársaukamörk þegar kemur að raforkukostnaði og það er einsýnt að hækkandi flutningskostnaður myndi þýða minni kaup á raforku. Þá þarf Landsnet að hækka verðskrána sem myndi enn frekar draga úr eftirspurn. Þarna gæti myndast spírall sem ekki endaði vel,“

er haft eftir honum. Hann sagði einnig að fjárfestingaráætlun Landsnets byggist á forsendum um vöxt sem byggist ekki á veruleikanum eins og hann blasi nú við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Dagfari: Fækkum ráðherrum, stofnunum og aðstoðarmönnum – aðhaldið verður að koma ofan frá

Dagfari: Fækkum ráðherrum, stofnunum og aðstoðarmönnum – aðhaldið verður að koma ofan frá
Eyjan
Í gær

Segir Sjálfstæðisflokkinn slá ryki í augun á millistéttarfólki – Í raun standi til að lækka skatta á hina ríku

Segir Sjálfstæðisflokkinn slá ryki í augun á millistéttarfólki – Í raun standi til að lækka skatta á hina ríku
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Ágúst Borgþór skrifar: Er hægt að létta þessari martröð af þjóðinni?

Ágúst Borgþór skrifar: Er hægt að létta þessari martröð af þjóðinni?
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Þetta myndi Arnar Þór gera ef hann væri Donald Trump

Þetta myndi Arnar Þór gera ef hann væri Donald Trump
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Snorri vill leggja Fjölmiðlanefnd niður – „Það er bara gert grín að þessu, þetta er bara brandari“

Snorri vill leggja Fjölmiðlanefnd niður – „Það er bara gert grín að þessu, þetta er bara brandari“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þrumuræða Ingu Sæland vekur mikla athygli – „Ég fyrirlít stjórnvöld sem ætla ekki að taka á þessu“

Þrumuræða Ingu Sæland vekur mikla athygli – „Ég fyrirlít stjórnvöld sem ætla ekki að taka á þessu“