,,Er veiðin góð? Sko, mín reynsla síðustu 18 árin er að vanir veiðimenn fá alltaf fisk í Vatnsdalsá,“ segir Einar Birkir Einarsson er við heyrum í honum og inntum frétta af Vatnsdalsá í Vatnsfirði.
,,Um leið vil ég ekki gera lítið úr þeim sem ekki fá fisk, sjálfur hef ég margsinnis snúið heim með öngulinn í rassinum. Vatnsdalsá er lítil tveggja stanga veiðiá og er viðkvæm, fiskurinn sér mann vel og því þarf maður að vera vanur veiðimaður eða þekkja ánna og nágrennið vel. Það sem skemmtilegast er við þetta veiðisvæði er fegurðin í friðlandinu, fuglalífið í samblandi við veiði á lax og silung,“ Einar Birkir í spjalli við Veiðipressuna.
Einar Birkir segir að undanfarin ár hefur laxveiðin verið fremur slök meðan silungsveiðin hefur stóraukist. Þetta árið kom hins vegar meira af laxi á land en undanfarin ár. Þar held ég að sleppingar síðustu ára hafi þar nokkur áhrif.
,,Við fundum fyrir aukningu í sölu veiðileyfa í ár og greinilegt að landinn var meira landinu. Annars er uppistaðan fólk sem hefur komið ár eftir ár og sumir svo áratugum skiptir. Árið ár var sem sagt bara ansi bærilegt þrátt fyrir þetta furðulega ástand sem annars ríkir,“ segir Einar Birkir ennfremur.
Mynd: Hér fylgja með fallegar myndir frá Vatnsdalsá.