fbpx
Föstudagur 11.apríl 2025
Pressan

Búa sig undir „fjöldadauðsföll“ í Bandaríkjunum vegna skógarelda

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 14. september 2020 07:31

Þetta líkist dómsdegi. Mynd: Deborah BLOOM / AFP

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinir gríðarlegu skógareldar á vesturströnd Bandaríkjanna eru enn stjórnlausir. Bandaríska veðurstofan, The US National Weather Service, hefur gefið út „rauða viðvörun“ vegna sterkra vinda yfir vesturströndinni en þeir geta gert ástandið enn verra en hingað til.

Veðurstofan segir að vindur, í norðurhluta vesturstrandarinnar í Oregon, auk mikils hita og þurrka hafi valdið því hversu öflugir skógareldarnir eru þessar vikurnar. Auk Oregon glíma íbúar í Washington og Kaliforníu við skógarelda.

Slökkviliðsmenn berjast við skógareld í Oregon. Mynd:EPA

Á laugardaginn var loftið rakara en það hefur verið um langa hríð en í gær breyttist það aftur og varð þurrt og fylgdu vindhviður sem mældust allt að 60 km/klst. BBC skýrir frá þessu. Segir miðillinn að tugir þúsunda hafi þurft að yfirgefa heimili sín og að 33 hafi látist í eldunum.

NPR hefur eftir embættismanni almannavarna í Oregon að ríkið þurfi að undirbúa sig undir „fjöldadauðsföll“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Kínverjar gera grín að Bandaríkjamönnum – Sjáðu myndbandið

Kínverjar gera grín að Bandaríkjamönnum – Sjáðu myndbandið
Pressan
Í gær

Margir þekktir á meðal þeirra sem létust í harmleiknum

Margir þekktir á meðal þeirra sem létust í harmleiknum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kostuleg viðbrögð blaðamanns við réttlætingum embættismanna á tollastefnunni vekja athygli

Kostuleg viðbrögð blaðamanns við réttlætingum embættismanna á tollastefnunni vekja athygli
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sundurlimað lík vísindamanns fannst í ferðatösku

Sundurlimað lík vísindamanns fannst í ferðatösku
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ráðgáta eftir að fimm hjúkrunarfræðingar á sömu hæð greindust með heilaæxli

Ráðgáta eftir að fimm hjúkrunarfræðingar á sömu hæð greindust með heilaæxli
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump sagður ætla að halda upp á afmælisdaginn með stærðarinnar sýningu

Trump sagður ætla að halda upp á afmælisdaginn með stærðarinnar sýningu