,,Mason kyssti mig og það varð hiti hjá okkur,“ segir Nadía Líf Gunnarsdóttir önnur af íslensku stúlkunum sem fór á hótel enska landsliðsins í einkaviðtali við The Sun sem birtist í gær. Nadía hefur sömu sögu að segja og Lára Clausen frænka hennar sagði við Daily Mail á föstudag.
Meira:
Lára opnar sig um nóttina örlagaríku á Hótel Sögu – „Það var gott að kyssa hann“
Nadía segir við The Sun að nóttin hafi verið heit ef marka má fyrirsögn enska götublaðsins.
„Það gerðust hlutir, en ég ætla ekki að ræða smáatriði. Hann var í góðu formi, ég kunni að meta það að hann vværi hærri í loftinu en ég.“
Nadía kveðst hafa vitað hver Mason væri áður en hún hitti hann. Þau höfðu spjallað saman í gegnum stefnumótaforrit sem er forritið Raya eins og DV sagði frá. „Ég hafði Googlað Mason og skoðað Instagramið hans. Ég sá að hann spilaði fyrir United. Ég sagðist koma og bóka herbergi og svo kom hann með Foden. Ég vissi ekki hver hann væri“
Nadía segir ensku landsliðsmennina aldrei hafa beðið Nadíu og Láru um að taka ekki myndir. „Þeir báðu okkur aldrei um að taka ekki myndir. Ég lak ekki neinum myndum.
Meira:
Lára opnar sig um nóttina örlagaríku á Hótel Sögu – „Það var gott að kyssa hann“