Vinkonurnar og frænkurnar Nadía Sif Líndal og Lára Clausen vöktu athygli heimsins þegar greint var frá heimsókn þeirra á Hótel Sögu til ensku landsliðsmannanna Phil Foden og Mason Greenwood. Fjölluðu margir stærstu miðlar heims á borð við BBC, The Sun, Ekstra Bladet og The Times um málið, auk þess sem samfélagsmiðlar loguðu. Eftir fréttirnar fengu þær Nadía og Lára mikla athygli á samfélagsmiðlum og hafa rakað inn mörgum þúsundum fylgjenda á samfélagsmiðlinum eftir fréttirnar. Nadía er komin upp í 29 þúsund fylgjendur en Lára í tæplega 17 þúsund fylgjendur.