Þegar laxveiðin er að detta niður á þessum tíma, jú hængarnir eru víða úrillir, fer hressi Daninn Nils Folmer og veiðir hvern stórfiskinn á fætur öðrum í veiðiánum.
Og hann fær fiska í laxveiðiám sem hafa verið að gefa lítið af fiski eins og Laxá í Aðaldal og Vatnsdalsá. Auðvitað er þetta bara kraftaverk.
Í gærmorgun veiddist fyrsti laxinn 103 sentimetra laxinn í Vatnsdalsá og hver annar en Nils Folmer Jörgensen veiddi hrygnu í Kötlustaðahyl. Fyrr í túrnum veiddi hann 97 sentimetra fisk. Þegar svo sem ekkert að gera á svæðinu, kemur Nils og veiðir hvern stórfiskinn á fætur öðrum.
Skömmu áður landaði Nils á Nesi í Laxá í Aðaldal 102 sentimetra lax og þar hefur minna en ekkert verið að gerast. Það stöðvar hins vegar ekkert þegar veðin er annars vegar. Nils, hann veiðir stóru laxana. Viku eftir viku. Og hann er er ekki hættur.
Nils Formel virðist hafa sérstakt lag að setja í þessa stóru laxa. Hann er auðvitað bara stórlaxakvíslari landsins. Það fer ekki á milli mála, hann kann að tala við þá með sínum vopnum.
Mynd. Níls Folmer Jorgensen með 102 sentimetra lax úr Laxá í Aðaldal fyrir skömmu.