fbpx
Mánudagur 07.apríl 2025
Pressan

Facebook lokar á pólitískar auglýsingar síðustu vikuna fyrir bandarísku forsetakosningarnar

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 10. september 2020 21:05

Færsla á Facebook bjargaði íbúum fjölbýlishúss frá hörmungum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórnendur Facebook hafa tekið þá ákvörðun að banna pólitískar auglýsingar á samfélagsmiðlinum síðustu vikuna fyrir bandarísku forsetakosningarnar sem fara fram þann 3. nóvember.  Í samtali við CBS News sagði Mark Zuckerberg, forstjóri og stofnandi Facebook, að þetta muni gilda um allar pólitískar auglýsingar.

„Þetta mun svo sannarlega gilda um forsetann þegar þetta tekur gildi og þetta mun gilda fyrir alla,“

sagði hann.

Zuckerberg sagðist hafa áhyggjur af þeim áskorunum sem kjósendur standa frammi fyrir í tengslum við kosningarnar, ekki síst vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar sem mun hafa þau áhrif að margir munu kjósa bréfleiðis.

„Ég hef áhyggjur af að þjóðin okkar sé svo klofin og að það geti hugsanlega liðið vikur þar til kosningaúrslitin liggja fyrir og að það muni auka hættuna á óróleika um allt land,“

sagði hann.

Auk þess að banna pólitískar auglýsingar mun Facebook setja sérstakar merkingar við færslur frambjóðenda eða framboða sem reyna að lýsa yfir sigri áður en niðurstöður liggja opinberlega fyrir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Enginn treystir Trump

Nýlegt

Pressan
Í gær

Fyrrum embættismenn og bandamenn Trump orðlausir yfir myndbandi sem forsetinn deildi – „Hann er að gera það viljandi“

Fyrrum embættismenn og bandamenn Trump orðlausir yfir myndbandi sem forsetinn deildi – „Hann er að gera það viljandi“
Pressan
Í gær

Harmleikur í litlu lögregluliði – Fjögur sjálfsvíg á sex vikum

Harmleikur í litlu lögregluliði – Fjögur sjálfsvíg á sex vikum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ætlar þú að fá þér hvolp? Þetta þarftu þá að hafa klárt

Ætlar þú að fá þér hvolp? Þetta þarftu þá að hafa klárt
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kínverjar segjast hafa fundið risastóra gullnámu

Kínverjar segjast hafa fundið risastóra gullnámu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump spilaði golf með forseta Finnlands – Vill nú kaupa ísbrjóta af Finnum

Trump spilaði golf með forseta Finnlands – Vill nú kaupa ísbrjóta af Finnum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fékk áfall þegar hún sá hvað eins árs sonur hennar var að borða – „Þegar sonur þinn borðar pabba þinn“

Fékk áfall þegar hún sá hvað eins árs sonur hennar var að borða – „Þegar sonur þinn borðar pabba þinn“
Pressan
Fyrir 4 dögum

350 bjarndýrum verður slátrað í Slóvakíu eftir banvæna árás

350 bjarndýrum verður slátrað í Slóvakíu eftir banvæna árás