Þáttaröðin hefur notið gríðarlegra vinsælda en nú er komið að leiðarlokum. Framleiðslunni verður hætt eftir ellefu þáttaraðir. Enn á eftir að gera sex síðustu þættina í tíundu þáttaröðinni en hlé var gert á framleiðslunni vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Þessir sex þættir verða sýndir í byrjun næsta árs og í árslok 2021 hefjast sýningar á elleftu og síðustu þáttaröðinni og lýkur þeim í árslok 2022. 24 þættir verða í síðastu þáttaröðinni.
Variety skýrir frá þessu. En fram kemur að aðdáendur þáttanna þurfi ekki að örvænta því hliðarsería verði gerð í framhaldinu og verði tvær af aðalpersónunum úr þáttunum með í henni.
Hér er rétt að þeir hætti að lesa sem vilja ekki láta skemma söguþráðinn fyrir sér og er Höskuldarviðvörunin því endurtekin!
Nýja hliðarþáttarröðin er nú þegar á teikniborðinu og hefur verið ákveðið að Daryl Dixon og Carol Peletier verði aðalpersónurnar í henni. Þetta eru einu persónurnar sem hafa verið með í gegnum allar þáttaraðirnar af The Walking Dead.