fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Fréttir

Glæsibústaðir í Þingvallaþjóðgarði að líða undir lok

Tobba Marinósdóttir
Sunnudaginn 6. september 2020 09:40

Bústaður Björns var kláraður fyrir nokkrum árum og þykir afar glæsilegur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Yfirlýst stefna Þingvallanefndar er að fækka bústöðum í einkaeign innan þjóðgarðsins á Þingvöllum. Á síðustu árum voru keyptir níu bústaðir sem stendur til að færa eða farga. Á friðlýstum helgistað allra landsmanna glittir þó enn í glæsihýsi.
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum varð til þegar svæðið var friðlýst með sérstökum lögum 1928. Hefur svæðið sem telur 228 km² verið skilgreint í lagabálkum sem „friðlýstur helgistaður allra Íslendinga“ og er á heimsminjaskrá UNESCO.  Það stingur því í stúf þegar gengið er fram á glæsihýsi innan marka Þjóðgarðsins. „Það hafa engir bústaðir verið byggðir síðustu 10 ár innan þjóðgarðsins,“ segir Einar Á. E. Sæmundsen þjóðgarðsvörður.
Hann segir Þjóðgarðsnefnd hafa ríka heimild til að skipta sér af framkvæmdum í garðinum svo sem stækkunum eða slíku og séu lóðarleigusamningar einungis gerðir til 10 ára í einu. Aðspurður um hvort það sé einhver möguleiki á því að stíga inn í kaup og sölu á glæsihýsum sem eru jafnvel metin á tvö hundruð milljónir svarar hann: „Það veltur allt á þeim fjárheimildum og vilja sem er til staðar hjá Þingvallanefnd.“ Öll kauptilboð í eignir á svæðinu fara fyrir Þingvallanefnd sem tekur afstöðu til þeirra. „Það hefur verið stefnan að nýta forkaupsrétt þegar efni og aðstæður bjóðast. Á síðustu 10 árum hefur verið gengið mjög ákveðið fram í því þegar tækifæri hafa boðist.“ Fyrr á árinu keypti fjármálaráðuneytið húsgrunn á 35 milljónir á svæðinu, en athygli vakti að fljúga þurfti steypunni í húsgrunninn með þyrlu. Húsgrunnur þessi hafði staðið óhreyfður í áraraðir þegar ríkið keypti hann.
Farga bústöðum
Lengi hefur verið rætt um erfðarétt á bústöðum á leigulóðum innan þjóðgarðsins að því leyti að falli eigandinn frá erfist rétturinn. „Þegar það eru nafnabreytingar innan fjölskyldu hefur nefndin ekki stigið inn í það.” Hann segir það vera annað mál en ef bústaðir eru til sölu. „Við höfum á síðustu árum verið að reyna að leysa til okkar alla bústaði í Gjábakka. Þeir voru níu en hafa allir verið keyptir. Það stóð til að byrja að fjarlægja þá í ár, en það hefur aðeins frestast vegna fjármagns og aðstæðna. Þeir verða svo fjarlægðir einn af öðrum, nema einn sem verður nýttur á vegum garðsins.”
Einar segir óvíst hvort þeim verði fargað eða seldir en ekki sé hlaupið að því að fjarlægja gamla bústaði á svæðinu. Sumir séu illa farnir og jafnvel ekki hægt að komast að þeim nema í miklu frosti og snjó þegar aðstæður eru hagstæðar og ólíklegt þyki að hægt sé að fjarlægja þá alla í heilu lagi. „Það eru meiri líkur en minni að þeim verði fargað. Við höfum fargað einum og selt einn til brottflutnings en það eru einhverjir mjög slappir. Þetta fer líka eftir markaðsaðstæðum. Þetta eru litlir og gamlir bústaðir í Gjábakka.“
Snortin náttúra
„Það er algengur misskilningur að það sé mikill fjöldi bústaða inni á þjóðgarðssvæðinu. Þeir eru rétt yfir 70 sem stendur. Það tilheyra ekki allir bústaðir í kringum Þingvallavatn þjóðgarðinum. Það eru í kringum 1.000 bústaðir í kringum vatnið sem tilheyra ekki þjóðgarðinum,“ segir Einar. Þeir bústaðir sem eru á svæðinu eiga að falla hvað mest að umhverfinu og lítið er sóst eftir stækkunum til nefndarinnar, að sögn Einars.Í stefnumörkunarskýrslu þjóðgarðsins frá 2019 kemur eftirfarandi fram: „Ljóst er að sumarhúsasvæðin eru snortin og ekki áhugaverð til verndunar í núverandi mynd. Á hinn bóginn skal tryggt að svæðin stingi ekki frekar í stúf en nú er og því ekki leyfðar frekari byggingar á þessum svæðum né þau stækkuð.“Glæsibústaður Bjössa og Dísu í World Class Í nóvember árið 2009 greindi DV frá því að Björn Leifsson og eiginkona hans Hafdís Jónsdóttir væru að byggja sumarbústað á besta stað á Þingvöllum í skugga taps sem félag þeiraa, Laugar ehf., varð fyrir árið 2008. Tapið það ár var rúmlega 268 milljónir króna en þrátt fyrir það ákvað Björn, sem sat einn í stjórn félagsins, að greiða sér 6 milljónir í arð. Sumarbústaðurinn var skráður á Laugar ehf. þegar hann var byggður. Samkvæmt iðnaðarmanni sem DV ræddi við á sínum tíma, var kostnaðurinn við byggingu bústaðarins líklega á milli 100 og 200 milljónir króna. Samkvæmt fréttinni frá 2009 er lóðin sem bústaðurinn stendur á 6 þúsund fermetrar að stærð. Bústaðurinn er á tveimur hæðum, kjallarinn er rúmlega 73 fermetrar, en hæðin fyrir ofan er tæpir 89 fermetrar. Samkvæmt heimildum DV var keypt grafa, sérstaklega fyrir byggingu bústaðarins. Þá var einnig prammi á svæðinu sem var notaður til að ferja byggingarefni yfir vatnið.Bústaðurinn var kláraður fyrir nokkrum árum og þykir afar glæsilegur. Samkvæmt heimildarmanni DV er orðrómur um að það hafi þurft þyrlu til að koma með gluggana að svæðinu þar sem erfitt er að komast að húsinu, sérstaklega með svo mikið og stórt gler.
Nágranni Björns, Ágúst Guðmundsson, Bakkavararbróðir, flaug steypu í sinn bústað þegar hann var byggður í sömu götu, með þyrlu.Glæsilegur spíttbátur er á lóðinni sem fjölskyldan og vinir hennar geta notað til að fara út á Þingvallavatn. Bústaðurinn er byggður afar nálægt bakka vatnsins og því þarf ekki að fara langt til að fara í bátsferð. Þá eru líka tveir kajakar á lóðinni sem einnig er hægt að nota til að ferðast um á vatninu fallega. Margir nafntogaðir einstaklingar hafa átt og eiga bústaði við Þingvallavatn sem er vissulega paradís allra landsmanna.
Bústaðurinn er afar glæsilegur
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Steinari ofbýður framkoma við erlenda ferðamenn – Var seldur pilsner við Seljalandsfoss þegar þau báðu um bjór

Steinari ofbýður framkoma við erlenda ferðamenn – Var seldur pilsner við Seljalandsfoss þegar þau báðu um bjór
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Viðtal við Elon Musk um transmálefni vekur mikla reiði og umtal – „Ég missti son minn“

Viðtal við Elon Musk um transmálefni vekur mikla reiði og umtal – „Ég missti son minn“
Fréttir
Í gær

Fjölskyldufaðir ósáttur við að vera kallaður flugdólgur

Fjölskyldufaðir ósáttur við að vera kallaður flugdólgur
Fréttir
Í gær

Gleðifréttir fyrir líffæraþega – Sjúkratryggingar Íslands munu greiða allan kostnað við bólusetningar

Gleðifréttir fyrir líffæraþega – Sjúkratryggingar Íslands munu greiða allan kostnað við bólusetningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Holskefla ofbeldisbrota gagnvart börnum gæti skýrst af kórónuveirufaraldrinum

Holskefla ofbeldisbrota gagnvart börnum gæti skýrst af kórónuveirufaraldrinum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kamala Harris býður sig fram til forseta

Kamala Harris býður sig fram til forseta