,,Við erum ennþá að veiða í hliðaránum og það er hellingur eftir af veiðitímanum. Við erum komnir í 800 laxa,“ sagði Þröstur Elliðason við Jöklu í dag sem er ekki falleg þessa dagana enda komið yfirfall núna. Og það þarf rigningu í Jökuldal núna en árnar sem renna í Jöklu eru vatnslitlar nema ekki Káldánin.
,,Sumarið hefur gengið vel hjá okkur. Hrútafjarðará er kominn í 260 laxa og Breiðdalsá í 85 laxa og við erum að byrja spúnna veiðina núna. Það á eftir að ganga vel,“ sagði Þröstur ennfremur.
Góð bleikjuveiðin hefur verið neðarlega í Kaldánni síðustu daga. Súddi veiddi vel á fluguna eins og aðrir veiðimenn. Fátt er skemmtilegra en að veiða vænar bleikjur sem taka grimmt en flestum er losað varðlega úr og sleppt aftur ána. Tveggja til fjögurra punda bleikjur sem er vandlátar á sumar flugur. Svona er þetta bara.
Mynd. María Gunnarsdóttir með flotta bleikju úr Kaldá. Mynd GB