Ágústa Johnson sagði í helgarviðtali við DV 21. ágúst sl. að heilsan sé aldrei mikilvægari en á tímum sem þessum og nú þurfi allir að horfa í eigin barm. „Mér finnst vanta inn í umræðuna um COVID19 að partur af lausninni er heilsuræktin. Það sem við höfum lært er að fólk með undirliggjandi sjúkdóma, lífsstílssjúkdóma eins og sykursýki tvö, háþrýsting, offitu og annað slíkt, á erfiðara með að glíma við COVID19 sjúkdóminn. Vissulega viljum við forðast smit en megum ekki loka okkur af, það þarf að sinna heilsunni, hún má aldrei sitja á hakanum. Það þarf að hugsa heilsurækt sem forvörn.“
Ágústa á ekki í vandræðum með að segja hlutina eins og þeir eru. „Við megum ekki gleyma stóru myndinni í forvörnum, við þurfum að byggja upp mótstöðu líkamans. Hver og einn þarf að hugsa fyrir sig, hvernig líður mér með mig? Hvernig er orkan mín og heilsan? Þarf ég að gera eitthvað í mínum málum? Það er ótal margt sem fólk getur gert. Ég er ekki að tala um útlit heldur heilbrigði.“
Ágústa bendir á að þótt heilbrigði snúist alls ekki um kíló sé það oft leiðin til að fá fólk til að takast á við heilsubresti sína. „Frá því að ég byrjaði í þessum bransa hefur það verið segin saga að ef Hreyfing auglýsir námskeið með texta á borð við „Viltu missa 10 kíló?“ þá stoppar ekki síminn, en ef það er orðað án kílóa, til dæmis „Viltu byggja upp heilsuna og auka hreysti?“ þá hringja kannski fimm eða tíu í stað tvö hundruð. Ef við tölum um að grennast í auglýsingum þá kemur fólk þó og bætir heilsuna í leiðinni. Ég er fyrsta manneskjan sem er til í að breyta þessu í hugum fólks en þessi „diet“ iðnaður á heimsvísu veltir skrilljónum og það virðast margir tilbúnir til að fara stystu leiðina til að líta vel út. Hvatinn til að byrja í ræktinni tengist því gjarnan að vilja missa kíló, það ætti auðvitað alls ekki að vera þannig. Það að tala um að styrkja hjarta og æðakerfið sitt ætti að duga. Það er heilsan sem skiptir máli, ekki að allir séu settir í sama form,“ segir Ágústa og segist bjartsýn á að landsmenn taki nú til óspilltra málanna við að efla sínar eigin varnir með því að setja heilsuna í fyrsta sæti.