Arnar Hauksson kvensjúkdómalæknir var brautryðjandi þegar kom að móttöku þolenda kynferðisofbeldis og lyfti grettistaki í málum trans fólks hér á landi. Honum þykir vænt um þá viðurkenningu sem felst í að mæður vísi dætrum sínum til hans. Arnar eru í forsíðuviðtali í nýju helgarblaði DV sem kemur út í dag.
Þegar stúlkur og ungar konur koma í fyrsta skipti til Arnars fer hann vel yfir ákveðin grundvallaratriði. „Ég kenni þeim allt um blæðingar, allt um kynsjúkdóma, allt um stráka og allt um að þora að segja nei. Ég segi þeim að varast ágengni, þora að hvessa brýnnar og segja: Viltu andskotast í burtu! Eftir þessa fræðslu spyr ég hvort þær vilji skoðun. Það skiptir máli að sýna gagnkvæma virðingu og ef þú ætlar að fá upplýsingar í trúnaði þá þarf maður að vera opinn sjálfur. Ef kvensjúkdómalæknir er ekki opinn er kannski betra að hann sé bifvélavirki.“
Þrátt fyrir að Arnar vilji almennt ekki halda eigin merkjum á lofti þykir honum vitanlega vænt um hvers konar viðurkenningu eins og hverjum öðrum. „Ég hef í löngum bunum fengið mæður til mín með dætur sínar. Þá finnst mér ég hafa gert gagn. Hjá mjög bráðþroska mæðgum hef ég fengið inn þriðju kynslóðina en ég þyrfti líklega að starfa í tíu ár til viðbótar til að það yrði einhver hópur.“
Viðtalið í heild sinni má lesa í helgarblaði DV.
Hættulegt ástand hefur skapast á hjúkrunarheimilinu Skjóli vegna manneklu og reynsluleysis starfsfólks. Heimildarmenn DV lýsa ofbeldi, kynferðislegri áreitni og óboðlegum vinnuaðstæðum sem versnuðu til muna í COVID faraldrinum.
Embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum logar í deilum. Starfsmenn skiptast í tvær fylkingar og tala um ógnarstjórn. Orðrómur hefur gengið innan embættisins síðan í maí á þessu ári um að Ólafur Helgi Kjartansson væri á „leiðinni út“ og Alda Hrönn Jóhannsdóttir yrði næsti lögreglustjóri.
Húsdraugur, milljóna arfur í garð katta og ósáttir klámframleiðendur eru á meðal þess sem komið hefur til kasta dómstóla hér á landi undanfarin ár.
Þetta og margt fleira í nýjasta helgarblaðinu. Fastir liðir eru á sínum stað, svo sem Sakamál, Fjölskylduhornið, Una í eldhúsinu, Tímavélin og krossgátan.
Einfalt er að gerast áskrifandi að DV, hvort sem er prentútgáfu eða vefútgáfu, með því að smella hér: dv.is/skraning Fyrstu tvær vikurnar fríar.