Nýjar reglur um samkomutakmarkanir vegna kórónuveirufaraldursins taka gildi þann 28. ágúst, eða á föstudaginn, og gilda til 10. september. Breytingar eru litlar frá því sem nú er í gildi, helstar þær að íþróttir eru almennt leyfðar, líka snertiíþróttir, en áhorfendur eru áfram bannaðir.
Þá er slakað nokkuð á skilgreiningu á tveggja metra reglunni.
Breytingarnar eru þessar, samkvæmt vef stjórnarráðs:
- 2 metra reglan: Ákvæði um almenna nálægðartakmörkun er breytt. Þar sem nú er kveðið á um að rekstraraðilar skuli tryggja að hægt sé að tryggja að minnsta kosti 2 metra milli einstaklinga sem ekki deila heimili verður ákvæðið þannig að tryggja beri að hægt sé að tryggja að minnsta kosti 2 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.
- Íþróttir: Samkvæmt nýju auglýsingunni verða íþróttir almennt leyfðar. Þær íþróttagreinar sem ekki heyra undir ÍSÍ (Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands) skulu setja sér leiðbeiningar eða fylgja sömu leiðbeiningum og sambærilegar íþróttagreinar innan ÍSÍ.
- Sviðslistir, tónlist og kvikmyndataka: Snertingar verða heimilar á æfingum í sviðslistum og tónlist á sama hátt og í íþróttum. Sama gildir um kvikmyndatöku.
- Líkamsræktarstöðvar: Takmarkanir vegna sérstakrar smithættu verða þær sömu á líkamsræktarstöðvum og á sund- og baðstöðvum. Gestir mega þar aldrei vera fleiri en nemur helmingi eða minna af leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi.
Sjá minnisblað sóttvarnalæknis