fbpx
Sunnudagur 20.apríl 2025
Fréttir

Forræðislaus faðir mættur aftur með mótmælaspjald fyrir utan bæjarskrifstofur Seltjarnarness

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 25. ágúst 2020 11:13

Myndin var tekin í desember. Faðirinn var mættur aftur með mótmælaspjald sitt í morgun

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meðfylgjandi mynd birtist með frétt á dv.is í desember árið 2019 og sýnir forræðislausan föður mótmæla því fyrir utan bæjarskrifstofur Seltjarnarness að hann hefur ekki fengið umgengnisrétt við dóttur sína. Barnaverndarmál eru viðkvæmur málaflokkur sem erfiður er umfjöllunar í fjölmiðlum, ekki síst vegna persónuverndar, en ástæðan fyrir því að DV greindi frá mótmælastöðu mannsins var sú að hann hefur undir höndum úrskurð Úrskurðarnefndar velferðarmála þess efnis að Fjölskyldunefnd Seltjarnarness eigi að taka mál hans fyrir og hraða afgreiðslu þess eins og kostur er. En Fjölskyldunefndin virðist ekkert hafa aðhafst í máli hans.

Núna, um 8-9 mánuðum síðar, hefur ekkert gerst í máli mannsins. Hann var því mættur aftur fyrir utan bæjarskrifstofur Seltjarnarness í morgun með mótmælaspjald sitt.

Dóttir mannsins, sem er 15 ára gömul, er vistuð utan heimilis í sátt við móður hennar en móðirin fer með forræði stúlkunnar. Nánar tiltekið er dóttirin vistuð á fósturheimili á landsbyggðinni. Maðurinn mótmælir því að hafa ekki umgengni við dótturina og seinagangi Fjölskyldunefndar Seltjarnarness við að úrskurða honum  umgengni. Að hans sögn vill hún fyrir alla muni umgangast hann og þau hafa hist í leyni.

„Ég beið í eitt ár eftir að komast á fund hjá sýslumanni, þar sem ég bað umgengnisrétt og samning. Sýslumaður sagði að hún gæti ekki tekið málið fyrir vegna þess að dóttir mín væri í umsjá fjölskyldunefndar. Ég benti henni á að fóstursamningurinn rann út 7. júni og því gæti hún úrskurðað. Hún gaf mér einn mánuð til að fá gögn og afrit af fóstursamningi. Fjölskyldunefndin gaf mér aldrei afrit af gögnum sem sanna að fóstursamningurinn sé útrunninn, þrátt ítrekaðar beiðni frá mér og dóttir um að fá afritið. Við fengum afsakanir um að aðilinn væri í fríi, sem er ósatt, því hún er í sumarfríi núna, og samningurinn væri týndur. Mánuðurinn leið og sýslumaðurinn varð að vísa málinu frá,“ segir maðurinn í samtali við DV.

Svo virðist sem hann mæti þögn og aðgerðaleysi kerfisins þrátt fyrir úrskurð um að Fjölskyldunefnd Seltjarnarness eigi að taka mál hans fyrir.

Þegar maðurinn mótmælti í desember kom lögregla á vettvang og bað hann um að fara af vettvangi. Varð hann við þeirri beiðni.

Að þessu sinni voru viðbrögðin önnur því stjórnandi á staðnum, líklega nýlega settur formaður Fjölskyldunefndar Seltjarnarness, kom út til hans og bauð honum inn til samtals. Óljóst er á þessari stundu hvort sá fundur kemur hreyfingu á mál föðurins.

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kærastinn að sökkva ofan í hyldýpi hægri samsæriskenninga – Spyr hvað sé til ráða?

Kærastinn að sökkva ofan í hyldýpi hægri samsæriskenninga – Spyr hvað sé til ráða?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Strútur réðst á Boris Johnson – „Of fyndið til þess að deila ekki“

Strútur réðst á Boris Johnson – „Of fyndið til þess að deila ekki“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þórður segir mjög mikilvægt að íslenska þjóðin sigri áróðursstríð útgerðarinnar – „Nú þarf að anda í kviðinn“

Þórður segir mjög mikilvægt að íslenska þjóðin sigri áróðursstríð útgerðarinnar – „Nú þarf að anda í kviðinn“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kristján Loftsson harðorður – „Alþingi ræður engu í dag hér“

Kristján Loftsson harðorður – „Alþingi ræður engu í dag hér“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur Ingi ver framhaldsskólafrumvarpið – „Ekki stendur til að hætta að líta til námsárangurs“

Guðmundur Ingi ver framhaldsskólafrumvarpið – „Ekki stendur til að hætta að líta til námsárangurs“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kona föst inni á salerni

Kona föst inni á salerni
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Segir bæjarstjórn Seltjarnarnes verða að horfast í augu við raunveruleikann – Uppsafnaður halli 3 milljarðar og þjónusta í molum

Segir bæjarstjórn Seltjarnarnes verða að horfast í augu við raunveruleikann – Uppsafnaður halli 3 milljarðar og þjónusta í molum
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Dómur fallinn yfir Hauki Ægi – Ákærður fyrir manndrápstilraun gegn sýrlenskum skutlara sem braut gegn dóttur kærustu hans

Dómur fallinn yfir Hauki Ægi – Ákærður fyrir manndrápstilraun gegn sýrlenskum skutlara sem braut gegn dóttur kærustu hans